Svavar Sigmundsson er látinn Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2026 10:42 Svavar Sigmundsson. HÍ Svavar Sigmundsson, fyrrverandi dósent og forstöðumaður Örnefnastofnunar Íslands, er látinn, 86 ára að aldri. Hann lést 11. apríl síðastliðinn.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, greindi frá andlátinu í pósti til starfsmanna HÍ í morgun. Um Svavar segir að hann hafi fæðst í Túni í Hraungerðishreppi 7. september 1939. „Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1958 og cand. mag. prófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1966. Hann var á næstu árum styrkþegi Handritastofnunar og lektor í íslensku fyrir erlenda stúdenta. Á árunum 1969-1971 starfaði Svavar sem sendikennari í íslensku við Háskólann í Helsinki, var ritstjóri við norræna fornmálsorðabók Árnastofnunar í Kaupmannahöfn 1971-1972 og sendikennari í íslensku við Hafnarháskóla 1972-1979. Hann var sérfræðingur við Orðabók Háskólans 1980-1982 og lektor og síðar dósent í íslensku fyrir erlenda stúdenta 1982-1999. Svavar gegndi starfi forstöðumanns Örnefnastofnunar Íslands 1999-2006 og var forstöðumaður örnefnasviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum 2006 til starfsloka 2009. Frá 1979 var hann ritstjóri Samheitaorðabókar sem fyrst kom út 1985. Svavar birti fjölda greina um málfræði og nafnfræði, en kom einnig að útgáfu fjölda rita, m.a. gaf hann út Íslenskar bænir fyrir 1600, sem kom út hjá Árnastofnun 2018. Á sjötugsafmæli hans kom út ritið Nefningar með úrvali greina hans um örnefni og fleiri málfræðileg efni. Eftir starfslok hélt Svavar ötullega áfram fræðastörfum sínum og á síðasta ári komu út Sýslu- og sóknarlýsingar Húnavatnssýslu, sem Svavar gaf út með Jóni Torfasyni, en áður hafði hann annast útgáfu slíkra lýsinga frá fleiri héröðum. Til hins síðasta hélt Svavar áfram örnefnarannsóknum og afhenti fyrir skömmu Árnastofnun mikið efni um örnefni, sem nú bíður útgáfu,“ segir í tilkynningunni.
Andlát Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Sjá meira