Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar 16. apríl 2026 11:03 Sveitarfélagið Árborg, með Selfoss sem sinn stærsta þéttbýliskjarna, er eitt mest vaxandi sveitarfélag á Íslandi. Íbúafjöldi hefur vaxið frá úr um 5.500 manns við stofnun þess í ríflega 13.000 nú fyrir skömmu. Þessi þróun skapar bæði tækifæri og áskoranir líkt og búast má við með. Með nýjum hverfum sem rísa á ógnarhraða er brýnt að tryggja að trjágróður og græn svæði verði hluti af uppbyggingunni frá upphafi en ekki vandamál seinni tíma. Byggð fyrir íbúa Okkar fjölsóttustu útivistarsvæði í Árborg eru einmitt þessi svæði sem hafa verið vandlega skipulögð frá upphafi og mjög margir íbúar og gestir njóta alla daga allt árið um kring. Hellisskógur er perla sem allir íbúar Árborgar þekkja, en þar hefur Skógræktarfélag Selfoss unnið frábært starf. Þegar skipuleggja á hlaupatúrinn eða ef fólk vill komast út til að fá súrefni og hvíla sálina þá leitar fólk gjarnan í skjól trjáa ef aðgengi er að þeim. Þar finnur fólk líka oftast aðra, sem eru í sömu erindagjörðum. Auk Hellisskógar, er svæðið í kringum íþróttasvæðið og Gesthús, og svo skjólbeltakraginn sem umvefur „gamla“ bæinn á Selfossi þau svæði sem helst er hægt að sækja í. Rannsóknir sýna að trjágróður í þéttbýlisumhverfi hefur bein jákvæð áhrif á líðan og heilsufar íbúa. Sem dæmi um áhrif má nefna: Lægri framleiðsla streituhormóns – fólk sem býr nær trjám og skógi líður betur. Lægri tíðni þunglyndis, kvíða og streitu. Aukinn hvati til hreyfingar og annarrar útiveru, sem hvetur til heilbrigðari lífstíls. Rannsóknir benda einnig til þess að borgir með meiri trjáþekju búi við minni glæpatíðni. 3-30-300 Í upphafi síðasta árs gaf Norræna ráðherranefndin út skýrsluna „Yggdrasil – The Living Nordic City“. Þar er kynnt innleiðing grænna lausna í þéttbýli sem kallast 3-30-300 reglan. Samkvæmt reglunni ættu allir að geta séð 3 stór tré frá heimili sínu, vinnustað, skóla eða dvalarstað. Það ætti að vera að minnsta kosti 30% laufþekja í hverju hverfi og ekki lengra en 300 metrar í næsta opna græna svæði sem er að lágmarki einn hektari að stærð. Reglan styður við ýmsa þætti til að efla lýðheilsu, sem svar við loftlagsbreytingum sem og annarra þátta. Í skýrslunni er fjallað um stöðuna á Norðurlöndunum og sett fram tilmæli um meðal annars: Verndun trjágróðurs og grænna svæða þegar verið er að þétta byggð Þátttöku almennings í trjáræktarverkefnum Að það þurfi að vera nóg af trjám og grænum svæðum fyrir nýbyggingar Að trjáræktarstefna verði fléttuð inn í skipulags- og þróunarstefnu Hvar stöndum við Í skýrslunni kemur fram að Ísland og Grænland standa öðrum Norðurlöndum langt að baki. En athygli vekur að Færeyjar og borgir á sambærilegum breiddargráðum og Ísland standa mun framar en við. Tökum saman nokkrar staðreyndir úr skýrslunni. Aðeins 40% bygginga á Íslandi uppfylla það að sjá 3 stór tré þaðan. Hlutfallið er 70-97% annarsstaðar á Norðurlöndunum. Aðeins 4% bygginga eru í hverfum þar sem laufþekjan er 30%, hlutfall í Færeyjum er 18,5%, 80% í Svíþjóð. Að sækja í græn svæði í þéttbýlum á Íslandi er að jafnaði 328 metrar, samanborið við Danmörku eru það 61 metrar, 27 metrar í Svíþjóð. Af hverju ekki Árborg? Árborg hefur alla burði til þess að verða bær að norrænni fyrirmynd, bara ef við viljum það. Hér eru góð skilyrði til ræktunar. Byggðir eru í mótun og ákall í öllum þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins til aukinna útivistarmöguleika. Líklega er hvergi hentugra en hér að ferðast um gangandi eða hjólandi, í það minnsta eru brekkurnar ekki að valda okkur ama. Árborg hefur ótrúlega gott tækifæri til að verða leiðandi sveitarfélag þegar kemur að lýðheilsu íbúa sinna. Tré og græn svæði eru innviðir sveitarfélaga alveg eins og skólar eða sundlaugar. Akureyrarbær er byrjaður að innleiða 3-30-300 regluna í sína byggðastefnu, af hverju ekki Árborg líka? Höfundur er skógfræðingur og skipar 6.sætið á lista Viðreisnar í Árborg. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar