Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar 15. apríl 2026 11:30 Menning og listir eru svona spariorð. Mest notuð spari og líka alltof sparlega! Það er helst á tyllidögum og í aðdraganda kosninga að þau eru dregin fram. Þegar kreppir að eru það menning og listir sem verða oft fyrst fyrir barðinu á niðurskurðinum. Og maður skilur að það sé sársaukaminna en að skera niður á velferðasviði sem dæmi. En það gleymist að menning og listir eru líka velferð. Ég hef sjálf orðið vitn að því að börn sem voru ekki að finna sig í íþróttum eða öðru félagsstarfi hafi gjörsamlega blómstrað í leiklist og komið sjálfum sér og öllum í kringum sig á óvart. Fundið styrk sinn, rödd og hæfileika; eignast nýtt líf hreinlega. Með þátttöku í leiklist, tónlist, myndlist, dansi eða öðrum skapandi verkefnum fá börn og ungmenni tækifæri til að tjá sig, byggja upp sjálfstraust og finna styrkleika sína. Slík þátttaka hjálpar þeim líka að finnast þau tilheyra; að þau séu hluti af samfélagi sem hlustar á þau og styður þau. Á Akureyri er frábær leiklistarskóli rekinn af Leikfélagi Akureyrar, tveir frábærir sjálfstæðir dansskólar þar sem hundruðum barna er kenndur dans, það er dásamlegur barnakór starfræktur í Akureyrarkirkju og Tónlistarskólinn á Akureyri og Tónræktin eru með magnað starf. Allt kostar þetta auðvitað peninga, nema barnakórinn, hann er ókeypis. Það er mikilvægt að öll börn hafi jöfn tækifæri til að taka þátt í skapandi starfi óháð efnahag og þar gegnir skólastarf lykilhlutverki. Hvar er t.d. skólakór Akureyrar? Eða skólahljómsveit Akureyrar? Og kannski mikilvægast af öllu; hvernig er staðan á listgreinakennslu í grunnskólunum? Aðalnámskrá grunnskóla kveður á um að kenna eigi dans, leiklist, sjónlist og tónmennt í grunnskólum landsins. Ég veit að erfitt hefur reynst að fá tónmenntakennara til starfa í grunnskólum og að tónmenntakennslu er ábótavant en nýlegt samstarf Tónlistarskóla Akureyrar við grunnskólana um tónmenntakennslu á miðstigi lofar góðu og nú stendur til að útvíkka verkefnið niður á yngsta stig líka. Við í L-listanum fögnum þessu samstarfi og styðjum heilshugar. Dans- og leiklistarkennsla þarf svo að komast á dagskrá líka. Því þetta er ekki munaður. Þetta er ekki eitthvað sem við gerum þegar vel árar. Þetta er fjárfesting í velferð, forvörnum í sterkari einstaklingum og heilbrigðarar samfélagi. Listgreinakennsla er einnig góður grunnur fyrir þær listnáms- og iðngreinabrautir sem framhaldskólarnir okkar bjóða upp á. Og auðvitað líka fyrir listnámið á háskólastigi sem vonandi verður að veruleika fyrr en síðar. Við segjum oft að hver króna sem fer í menningu skapandi greinar skili sér margfalt til baka. Ég trúi því. En hún skilar sér ekki síst í mannauði, í sjálfstrausti, í röddum sem annars hefðu kannski þagnað. Áfram menning og listir. Ekki bara á tyllidögum, heldur alla daga. Höfundur er í 4. sæti L-listans og er forsprakki Fiðrings á Norðurlandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar