Heilbrigðiskerfið tekur á móti börnunum Ástþóra Kristinsdóttir, María Rut Beck og Ingibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir skrifa 15. apríl 2026 09:00 Þegar barn verður fyrir ofbeldi skiptir máli hvernig heilbrigðiskerfið bregst við. Hvort sem um er að ræða líkamlegt ofbeldi, kynferðisofbeldi eða vanrækslu þurfa viðbrögðin að vera skýr, samhæfð og aðgengileg – hvar sem barnið býr á landinu. Innan aðgerðaáætlunar stjórnvalda gegn ofbeldi meðal og gegn börnum 2025-2026 eru nokkrar lykilaðgerðir sem snúa beint að heilbrigðiskerfinu. Tvær þeirra skera sig sérstaklega úr: skimun eftir ofbeldi í grunnskólum og stofnun sérhæfðrar ofbeldismóttöku á Landspítala. Í janúar 2025 skipaði heilbrigðisráðuneytið vinnuhóp skólahjúkrunarfræðinga sem falið var að móta samræmt verklag um skimun. Hópurinn skilaði skýrslu í júní sama ár þar sem lagðar voru til sex megintillögur, meðal annars formleg skimun eftir ofbeldi í 1., 4., 7. og 9. bekk og skimun í meðgöngu-, ung- og smábarnavernd. Einnig var lagt til að stofnað yrði miðlægt áfallateymi sem gæti gripið inn í um leið og grunur um ofbeldi vaknar. Könnun meðal skólahjúkrunarfræðinga sýndi að um 70% þeirra höfðu átt samtal við barn um ofbeldi á síðustu 12 mánuðum, en margir töldu sig skorta betri þekkingu á samtalstækni og skýrara ferli um næstu skref. Þróunarverkefni um skimunina hófst í mars hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Heilsugæslunni í Salahverfi og Heilbrigðisstofnun Vesturlands, í samstarfi við fimm grunnskóla og verið er að vinna úr fyrstu niðurstöðum. Reynslan af verkefninu mun leggja grunninn að innleiðingu á landsvísu. Samhliða hefur Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu útbúið fræðsluefni fyrir heilbrigðisstarfsfólk um rétt viðbrögð og verklag þegar grunur vaknar um ofbeldi. Unnið er að því að kynna fræðsluefnið og gera það aðgengilegt öllum heilbrigðisstofnunum landsins. Landspítala hefur jafnframt verið falið að uppfæra og samræma verklag við móttöku barna sem eru þolendur ofbeldis. Markmiðið er að uppfært verklag verði komið í gæðaskjöl á öllum heilbrigðisstofnunum landsins og tryggi samræmt viðbragð óháð búsetu barnsins. Samhliða er unnið að því að skýra samskipti barnaverndar og heilbrigðiskerfisins um afdrif mála, svo ekkert barn detti á milli kerfa. Börnunum sem greinast og þurfa sérhæfða þjónustu verður vísað til Bryndísarhlíðar, nýrrar ofbeldis- og áfallamiðstöðvar Landspítala. Móttakan verður staðsett í gamla Kennaraskólanum, við hlið Barnaspítala Hringsins og þar verða undir einu þaki ofbeldismóttaka barna, heimilisofbeldisteymi, áfallateymi fullorðinna og nýtt áfallateymi barna. Miðstöðin er stofnuð í samstarfi við Minningarsjóð í nafni Bryndísar Klöru og áætluð opnun er í febrúar 2027. Þegar er unnið að því að finna aðstöðu í húsnæði Barnaspítala Hringsins til að taka við tilvísunum þar til Bryndísarhlíð opnar formlega. Með skimuninni verður hægt að grípa börn fyrr – og með ofbeldismóttökunni verður tryggt að þau fái viðeigandi þjónustu þegar á þarf að halda. Ástþóra Kristinsdóttir, ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur og verkefnastjóri hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæsluMaría Rut Beck, verkefnastjóri LandspítalaIngibjörg Thomsen Hreiðarsdóttir, sérfræðingur við heilbrigðisráðuneytið Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar