Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. apríl 2026 07:31 Yfirvöld segja alla sem verða uppvísir að svikum verða flutta úr landi. Getty Rannsókn BBC hefur leitt í ljós að lögmenn og ráðgjafar á Bretlandseyjum hafa rukkað hælisleitendur um háar fjárhæðir fyrir aðstoð, þar sem þeim er leiðbeint með það að þykjast vera samkynhneigðir í þeim tilgangi að fá hæli.
Samkvæmt BBC inniheldur „pakkinn“ skáldaða fortíð, myndir, bréf og læknaskýrslur. Gögnin eru til þess gerð að styðja fullyrðingar hælisleitendanna, yfirleitt frá Pakistan eða Bangladesh, um að þeir séu samkynhneigðir og óttist um líf sitt í heimalandinu. Líkt og tíðkast víðar í heiminum er hægt að sækja um hæli á Bretlandi ef menn geta sýnt fram á að þeim sé ekki vært í heimalandinu. Að sögn BBC eru umsækjendurnir oftar en ekki einstaklingar sem hafa dvalið á Bretlandi á grundvelli tímabundinna leyfa vegna náms, vinnu eða ferðalaga. Umsóknir frá umræddum hóp telja nú 35 prósent af öllum hælisumsóknum og voru yfir 100 þúsund talsins í fyrra. Við rannsóknina þóttust blaðamenn BBC vera nemar hvers heimild til að dvelja í landinu var að renna út og sóttu aðstoð ráðgjafa. Ein lögmannsstofa reyndist bjóða fram aðstoð við að falsa umsókn fyrir þóknun upp á 7.000 pund og þá sagðist einn ráðgjafi geta útvegað skjólstæðingi „plat kærasta“. Einum var tjáð að hann gæti fengið konu sína til sín frá Pakistan þegar hann hefði fengið hæli, með því að láta hana þykjast vera lesbía. Hér má finna ítarlega umfjöllun BBC um málið.
Bretland Hælisleitendur Hinsegin Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Sjá meira