Treður hið opinbera sér í hleðslugatið? Ólafur Stephensen skrifar 14. apríl 2026 10:30 Ein af þremur aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að stemma stigu við verðbólgu er að fjölga hleðslustöðum við fjölbýlishús og gististaði og „loka hleðslugatinu“ hringinn í kringum landið. Þetta er auðvitað góðra gjalda vert, þótt það liggi ekki alveg í augum uppi hvernig það dregur úr verðbólgu að fólk geti hlaðið rafbíla víðar. Helzt er hægt að láta sér detta í hug að þarna séu stjórnvöld að bregðast við gagnrýni Félags atvinnurekenda og ýmissa fleiri á breytingar á vörugjöldum á ökutækjum, sem tóku gildi um síðustu áramót. Þær fólu í sér stórhækkun vörugjalda og verðlags á benzín- og dísilbílum en niðurfellingu vörugjalds af rafbílum (og afnám rafbílastyrks í leiðinni). Stjórnvöldum var bent á að þetta myndi þýða mikinn skell fyrir t.d. bílaleigur, vegna þess að orkuinnviðir landsins væru engan veginn tilbúnir fyrir orkuskipti í flota bílaleiganna. Ef stjórnvöld vildu stuðla að slíkri breytingu, ætti að byrja á réttum enda og byggja upp hleðsluinnviði á gisti- og viðkomustöðum ferðamanna um allt land. Á það var ekki hlustað þá. Þessi aðgerð, sem nú hefur verið tilkynnt, kemur auðvitað of seint og mun ekki breyta því að bílaleigurnar birgðu sig upp af jarðefnaeldsneytisbílum fyrir áramót. En látum það vera. Þurfum við ríkisbenzínstöðvar? Hitt er enn áleitnari spurning hvaða áhrif þeir 500 milljóna króna styrkir, sem eru boðaðir til uppbyggingar hleðslustöðva, hafa á markaðshlutdeild og samkeppnisstöðu á hleðslumarkaðnum. Fyrir tveimur árum vann ráðgjafarfyrirtækið Intellecon skýrsluna „Er ríkið í stuði?“ fyrir Félag atvinnurekenda. Þar var sjónum beint að því hvernig fyrirtæki í eigu ríkisins og sveitarfélaga veita einkafyrirtækjum harða samkeppni á hinum hratt vaxandi markaði fyrir hleðslu og þjónustu við eigendur rafbíla. Fyrirtæki eins og Orka náttúrunnar, Orkusalan og Orkubú Vestfjarða hafa gert sig gildandi á þessum markaði og selja almenningi bæði hleðslu og tækin til að hlaða rafbíla. Á tímum orkuskipta, þar sem orkugjafi bifreiða færist frá því að vera benzín eða dísilolía yfir að vera rafmagn, er óhætt að spyrja hvort hið opinbera þurfi eitthvað frekar að starfa á þessum markaði en þess hefur gerzt þörf að það starfaði á eldsneytismarkaðnum. Í skýrslu Intellecon sagði: „Fáir myndu mæla fyrir því að hið opinbera færi að reka bensínstöðvar í dag. Sennilega kæmi það einnig fólki spánskt fyrir sjónir að veitufyrirtæki í eigu hins opinbera seldi fólki elda- eða þvottavélar og uppsetningu þeirra.“ Fyrirtæki í eigu skattgreiðenda fái ekki styrki frá skattgreiðendum Loftslags- og orkusjóður, sem á að úthluta milljónunum 500 til uppbyggingar hleðslustöðva, hefur undanfarin ár veitt hundruð milljóna úr sjóði skattgreiðenda til fyrirtækja í eigu sömu skattgreiðenda til að styrkja verkefni þeirra á sviðum orkuskipta í samgöngum. Við síðustu úthlutun sjóðsins fóru um 650 milljónir króna til verkefna tengdra hleðsluinnviðum. Fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga fengu 434 milljónir af þeirri fjárhæð, eða um tvo þriðjuhluta. Styrkir Loftslags- og orkusjóðs eru að jafnaði vegna þriðjungs kostnaðar við viðkomandi verkefni. Styrkveitingar ríkisins til sjálfs sín og sveitarfélaga ýta beinlínis undir útþenslustefnu fyrirtækja í opinberri eigu á hleðslumarkaðnum, í samkeppni við einkafyrirtæki. Eitt af því sem Félag atvinnurekenda hefur lagt til í því skyni að halda hinu opinbera í skefjum á hleðslumarkaðnum er að undanskilja fyrirtæki í eigu skattgreiðenda styrkjum frá sömu skattgreiðendum við úthlutun úr Orku- og loftslagssjóði. Það er full ástæða til að ítreka þá tillögu hér. Það er raunveruleg hætta á að fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga hirði meirihluta þessarar fjárhæðar og hið opinbera troði sér enn rækilegar inn á þennan markað, þar sem ekki er nokkur þörf á að það starfi. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar