Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. apríl 2026 22:25 Þessar Hollywood-stjörnur eru meðal rúmlega þúsund manns sem skrifuðu undir bréfið. Samsett/Getty Emma Thompson, Pedro Pascal, Jane Fonda og Joaquin Phoenix eru meðal þúsund starfsmanna innan Hollywood sem undirritað hafa opið bréf til að mótmæla samruna Paramount og Warner Bros. Discovery. „
Sem kvikmyndagerðarfólk, heimildarmyndagerðarfólk og fagfólk í kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum undirritum við listann til að lýsa yfir ótvíræðri andstöðu okkar við fyrirhugaðan samruna Paramount og Warner Bros. Discovery,“ segir í opnu bréfi. Þátttakendurnir óttast að samruninn myndi þjappa saman markaðinum sem sé þegar mjög samþjappaður að þeirra mati. Það muni draga úr samkeppni sem geirinn hafi ekki efni á. „Afleiðingin verður færri tækifæri fyrir höfunda, færri störf í allri framleiðslu, hærri kostnaður og minna val fyrir áhorfendur í Bandaríkjunum og um allan heim. Það er uggvænlegt að þessi samruni myndi fækka stóru bandarísku kvikmyndaverunum niður í aðeins fjögur.“ Í lok febrúar varð ljóst að Paramount Skydance hafði betur en Netflix í baráttunni um samruna við Warner Bros. Discovery. Í svari Paramount við bréfinu segir að þau hafi heyrt og skilji áhyggjur þeirra sem undirrita bréfið. Þá er skuldbinding fyrirtækisins um að gefa út að lágmarki þrjátíu „hágæðakvikmyndir í fullri lengd árlega“ ítrekuð samkvæmt NBC News. Þeir sem hafa einnig skrifað undir bréfið eru Elliot Page, Noah Wyle, Cynthia Nixon, Lin-Manuel Miranda og Mark Ruffalo. Listann má sjá í heild sinni hér.
Hollywood Bandaríkin Bíó og sjónvarp Streymisveitur Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Innlent Fleiri fréttir Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Sjá meira