Fyrir fólkið Jónas Þór Birgisson skrifar 13. apríl 2026 09:03 Ég hef unnið sem lyfsali í 23 ár. Það starf er auðvitað margþætt hvað varðar stjórnun og samskipti við ýmsa aðila. Í grunninn er samt um að ræða þjónustu við viðskiptavinina. Að leggja sig allan fram fyrir fólkið um góða þjónustu. Þar erum við alltaf að spyrja okkur hvernig við getum bætt þjónustuna á sama tíma og reynt er að fara eins vel með fé fyrirtækisins og við getum. Á sambærilegan hátt felst starfsemi sveitarfélaga fyrst og fremst í þjónustu við íbúana. Kennsla og önnur starfsemi í grunnskólum og leikskólum er þannig þjónusta við nemendur, vinna í velferðarmálum er þjónusta við fjölskyldur og einstaklinga á öllum aldri, vinna í skipulagsmálum er þjónusta við íbúa og atvinnulíf. Þjónusta sem er fyrir fólkið í sveitarfélaginu. Það er hlutverk kjörinna fulltrúa að ráðstafa fjármunum fyrir hönd íbúanna og því fylgir mikil ábyrgð. Langflest sveitarfélög leggja á hámarksútsvar sem er 14,97%. Það þýðir til einföldunar að af hverjum sjö klukkustundum sem við vinnum þá vinnum við rúmlega eina klukkustund fyrir sveitarfélagið okkar. Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Miðgildi launa á Íslandi er í kringum 835.000,- kr. á mánuði og miðgildi greiddra fasteignagjalda í kringum 500.000,- kr. á ári. Það þýðir að næstum því ein útborguð mánaðarlaun fara í greiðslu fasteignagjalda á hverju ári. Það má því ljóst vera að mjög stór hluti af því fé sem við vinnum okkur inn er ráðstafað af kjörnum fulltrúum í sveitarstjórnum. Í mínum huga felst starf kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og sveitarfélagsins fyrst og fremst í því að veita sem besta þjónustu en á sama tíma fara sem best með fjármuni íbúanna. Ég tel nauðsynlegt að við spyrjum okkur stöðugt á gagnrýnan hátt hvort við getum veitt enn betri þjónustu fyrir þá fjármuni frá íbúunum sem við höfum úr að spila eða hvort við getum minnkað þá upphæð sem við tökum af íbúum okkar. Það er hugsunarháttur sem ég vil innleiða í alla starfsemi sveitarfélagsins á markvissan hátt. Ákvarðanir um fjármuni íbúa skulu leiða til ávinnings fyrir fólkið. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningum 2026 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar