Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar 13. apríl 2026 07:02 „Vinda þarf ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborginni sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjaldskyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði.“ Svo mörg voru orð Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í grein í Morgunblaðinu 9. apríl s.l.. Í sömu átt hné samfélagsmiðlafærsla hennar þann 23. mars s.l.. En er þessi málflutningur trúverðugur? Hjásetur Hildar Um margra árabil hefur borgarfulltrúinn Hildur Björnsdóttir haft tilhneigingu til að sitja hjá í málum frá meirihluta borgarstjórnar sem varðað hafa þrengingar að umferð fjölskyldubílsins í miðborg Reykjavíkur. Sem dæmi tók hún þátt í fundi borgarráðs í lok júní 2023 og sat hjá þegar bílastæðagjöld á gjaldsvæði 1 voru hækkuð um 40 prósent í miðborg Reykjavíkur og tími gjaldtöku lengdur frá kl. 18:00 til 21:00 á virkum dögum og laugardögum. Voru þessar breytingar gagnrýndar af mörgum, m.a. sagði í færslu á heimasíðu Félags bifreiðaeigenda, 3. október 2023, að þær yllu „íbúum og gestum mikilli óánægju og má segja að um hreina aðför sé að ræða“. Hildur, sem oddviti minnihluta í borgarstjórn, sá á þeim tíma ekki ástæðu til að leggja fram tillögu í borgarstjórn um að breyta þessa fyrirkomulagi. Um augljóst tækifæri var þó að ræða, enda höfðu fjölmargir aðilar mótmælt breytingum á gjaldskyldunni sumarið 2023. Það má því segja að aðgerðarleysi í þessum málaflokki hafi einkennt störf Hildar sem borgarfulltrúa, bæði á yfirstandandi kjörtímabili og því síðasta. Korter í kosningar Nú í aðdraganda borgarstjórnarkosninga þann 16. maí n.k. talar Hildur hinsvegar óvænt gegn bílastæðustefnu borgaryfirvalda í miðborg Reykjavíkur og á borgarstjórnarfundi n.k. þriðjudag liggur fyrir tillaga Sjálfstæðisflokksins um breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða. Það er að sjálfsögðu gleðilegt þegar fólk sér að sér, en borgarbúarláta ekki blekkjastaf þessari stefnubreytingu Hildar og Sjálfstæðisflokksins svona stuttu fyrir kosningar. Ég tel líklegra að Miðflokkurinn sýni meiri festu í málum sem þessum. Höfundur er sérfræðingur í opinberri stefnumótun, með doktorspróf og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og rekstrarhagfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bílastæði Sjálfstæðisflokkurinn Borgarstjórn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
„
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar