„Að mínu mati lýsir þessi dómur ekki réttlæti“ Árni Sæberg skrifar 10. apríl 2026 10:36 Aníta Rut í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Anton Brink Aníta Rut Harðardóttir lögreglumaður, sem var á dögunum dæmd fyrir ólögmætar uppflettingar í LÖKE, telur dóminn ekki réttlátan. „Hvaða réttlæti er í því að handrukkarar og fíkniefnasalar geti ógnað lífi og limum einstæðings í viðkvæmri stöðu með ungt barn á framfæri?“ spyr hún.
Vísir fjallaði í morgun um dóm yfir Anítu Rut, sem var sektuð um hundrað þúsund krónur vegna uppflettinganna ólögmætu. Hafi verið að ná tökum á lífinu þegar gamlir draugar bönkuðu upp á Í dóminum kemur fram að Aníta Rut hafi flett upp í LÖKE til að freysta þess að komast í samband við mann sem hafði stofnað kröfu í heimabanka vandamanns hennar vegna meintrar gamallar fíkniefnaskuldar. Aníta Rut hefur nú tjáð sig opinberlega um málið í fyrsta skiptið en það gerir hún í færslu á Facebook. „Það skal tekið fram að umræddur ættingi er fíkill í bata og búinn að vera edrú í 6 ár, búinn að mennta sig og eignast barn, loksins að ná tökum á lífinu þegar að gamlir draugar banka upp á,“ segir hún. Þorði ekki að leggja fram formlega kæru Aníta Rut segir að frétt Vísis sé rétt en hún vilji koma því á framfæri að hún hafi verið í vinnu og til hennar hafi leitað ættingi í miklu uppnámi, ekki einungis vegna þess að honum hefði borist rukkun inn á heimabanka sinn vegna meintrar fíkniefnaskuldar heldur hafi honum einnig verið hótað líkamsmeiðingum, eins og fram komi í dóminum. „Umræddur ættingi var það óttasleginn um líf sitt og barns síns að hann þorði ekki að leggja fram formlega kæru vegna afleiðinga sem það myndi mögulega hafa. Ég vil taka það fram að ég sjálf skráði málið í LÖKE eins og venja er þegar maður fær mál inn á sitt borð vegna þess að ég hafði ekkert að fela enda fletti ég engu öðru upp nema því sem þessu máli tengdist. Það sem ég gerði, ég vann vinnuna, gætti meðalhófs sem leiddi til þess að skuldin var fjarlægð og umræddur ættingi var látinn í friði.“
Lögreglan Dómsmál Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira