Að vera rétt tengdur eða bara „íbúi“? Guðrún M. Njálsdóttir skrifar 8. apríl 2026 14:31 Í Grímsnes- og Grafningshreppi virðist nú skipta máli hvaða íbúi þú ert, ekki bara hvort þú sért íbúi. Í nýlegri grein velti oddviti sveitarfélagsins því upp hvað felist í því að vera íbúi og hvort lögheimilisskráning ein og sér nægi. En í stað þess að skýra umræðuna virðist hún draga upp línu á milli „rétt tengdra“ íbúa og annarra. Í grein hennar segir orðrétt: „Ekki utanaðkomandi aðilar sem hafa takmarkaða tengingu við samfélagið eða standa utan við það daglega líf sem hér fer fram.“ Þessi orð vekja spurningar. Hvað þýðir að hafa „takmarkaða tengingu“?Hver ákveður það?Er til mælikvarði sem metur hversu „rétt tengdur“ íbúi er? Í Grímsnes- og Grafningshreppi býr fjölbreyttur hópur fólks. Þar eru íbúar með skráð lögheimili, en einnig fólk sem hefur búið þar lengi í frístundahúsum, tengst samfélaginu, tekið þátt í félagslífi og lifað sínu daglega lífi á svæðinu. Eru þeir ekki hluti af samfélaginu? Hvað með þá sem eiga börn í leik- og grunnskóla?Hvað með þá sem taka þátt í félagsstarfi eða hafa setið í nefndum á vegum sveitarfélagsins? Standa þeir utan við það daglega líf sem hér fer fram? Eða eru aðeins þeir sem búa á ákveðnum stöðum, með ákveðnar rætur, taldir fullgildir íbúar? Þetta eru ekki saklaus skilaboð. Þau draga upp mynd af samfélagi þar sem sumir teljast „réttir“ íbúar en aðrir síður. Slík nálgun á ekki heima í sveitarfélagi sem vill byggja á samheldni, sanngirni og virðingu fyrir ólíkum aðstæðum íbúa. Það er rétt að því fylgir ábyrgð að stýra sveitarfélagi. Sú ábyrgð felst meðal annars í því að hlusta á íbúa og taka mið af ólíkum þörfum þeirra. Margir íbúar í Grímsnes- og Grafningshreppi upplifa að það hafi skort á einmitt þetta á undanförnum árum. Þess vegna er komin krafa um breytingar. Höfundur er „íbúi“ í Grímsnes- og Grafningshreppi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Grímsnes- og Grafningshreppur Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í Grímsnes- og Grafningshreppi virðist nú skipta máli hvaða íbúi þú ert, ekki bara hvort þú sért íbúi. Í nýlegri grein velti oddviti sveitarfélagsins því upp hvað felist í því að vera íbúi og hvort lögheimilisskráning ein og sér nægi. En í stað þess að skýra umræðuna virðist hún draga upp línu á milli „rétt tengdra“ íbúa og annarra. Í grein hennar segir orðrétt: „Ekki utanaðkomandi aðilar sem hafa takmarkaða tengingu við samfélagið eða standa utan við það daglega líf sem hér fer fram.“ Þessi orð vekja spurningar. Hvað þýðir að hafa „takmarkaða tengingu“?Hver ákveður það?Er til mælikvarði sem metur hversu „rétt tengdur“ íbúi er? Í Grímsnes- og Grafningshreppi býr fjölbreyttur hópur fólks. Þar eru íbúar með skráð lögheimili, en einnig fólk sem hefur búið þar lengi í frístundahúsum, tengst samfélaginu, tekið þátt í félagslífi og lifað sínu daglega lífi á svæðinu. Eru þeir ekki hluti af samfélaginu? Hvað með þá sem eiga börn í leik- og grunnskóla?Hvað með þá sem taka þátt í félagsstarfi eða hafa setið í nefndum á vegum sveitarfélagsins? Standa þeir utan við það daglega líf sem hér fer fram? Eða eru aðeins þeir sem búa á ákveðnum stöðum, með ákveðnar rætur, taldir fullgildir íbúar? Þetta eru ekki saklaus skilaboð. Þau draga upp mynd af samfélagi þar sem sumir teljast „réttir“ íbúar en aðrir síður. Slík nálgun á ekki heima í sveitarfélagi sem vill byggja á samheldni, sanngirni og virðingu fyrir ólíkum aðstæðum íbúa. Það er rétt að því fylgir ábyrgð að stýra sveitarfélagi. Sú ábyrgð felst meðal annars í því að hlusta á íbúa og taka mið af ólíkum þörfum þeirra. Margir íbúar í Grímsnes- og Grafningshreppi upplifa að það hafi skort á einmitt þetta á undanförnum árum. Þess vegna er komin krafa um breytingar. Höfundur er „íbúi“ í Grímsnes- og Grafningshreppi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar