Innherji

Kláraði 25 milljarða sam­starfs­samning við systur­félagið Al­vogen í lok árs

Hörður Ægisson skrifar
Hlutabréfafjárfestar Alvotech hafa átt undir högg að sækja um nokkurt skeið og gengi bréfa félagsins er niður um meira en fimmtíu prósent frá því að ljóst varð snemma í nóvember að bið yrði á samþykki FDA fyrir nýjum hliðstæðum á Bandaríkjamarkað.
Hlutabréfafjárfestar Alvotech hafa átt undir högg að sækja um nokkurt skeið og gengi bréfa félagsins er niður um meira en fimmtíu prósent frá því að ljóst varð snemma í nóvember að bið yrði á samþykki FDA fyrir nýjum hliðstæðum á Bandaríkjamarkað.

Nýr samstarfssamningur sem Alvotech gerði við systurfélag sitt, Alvogen, rétt undir lok síðasta árs sem nær til markaðssetningar í Bandaríkjunum á þremur líftæknilyfjahliðstæðum í þróun getur skilað íslenska félaginu yfir 200 milljónum dala í leyfis- og áfangatekjur. Hluti þeirra tekna var bókfærður á fjórða ársfjórðungi en hlutabréfaverð Alvotech hefur rétt aðeins úr kútnum að undanförnu.


Tengdar fréttir

Ætlar að vera „nánast skuld­laus og með afar sterka sjóðstöðu“ eftir tvær risasölur

Fjárfestingafélag Róberts Wessman fær að óbreyttu í sinn hlut samtals nálægt einn milljarð Bandaríkjadala í reiðufé við sölu á lyfjafyrirtækjunum Adalvo og Alvogen US sem verður að stórum hluta nýtt til að gera upp skuldir Aztiq. „Við erum að breyta aðeins um stefnu þegar kemur að fjármögnun félagsins. Við ætlum að vera nánast skuldlaus og með afar sterka sjóðstöðu. Það verður staðan eftir þessi viðskipti,“ segir Róbert, sem fullyrðir að Aztiq samsteypan sé „öflugasta fjárfestingafélag landsins“ þegar kemur að umfangi eigna.

Líf­eyris­sjóðir biðu af sér dýfuna þegar gengi Al­vot­ech féll um sextíu pró­sent

Á meðan innlendir verðbréfasjóðir hafa flestir hverjir minnkað verulega stöðu sína í Alvotech undanfarna mánuði og misseri hafa lífeyrissjóðir beðið af sér dýfuna sem hefur orðið á hlutabréfaverði líftæknilyfjafélagsins. Eignarhlutur helstu lífeyrissjóða í Alvotech hélst að mestu óbreyttur í fyrra þegar gengi bréfa félagsins féll um meira en sextíu prósent.

Heildar­virði Al­vogen metið á tvo milljarða dala við sölu á félaginu til Lotus

Alvogen Pharma í Bandaríkjunum, sem er að stórum hluta í eigu fjárfestingafélags Róberts Wessman, hefur verið selt til Lotus í Taívan en heildarvirði samheitalyfjafyrirtækisins í viðskiptunum getur numið um tveimur milljörðum Bandaríkjadala. Þetta er önnur risasala Róberts á félögum í lyfjageiranum þar sem hann fer með ráðandi hlut á fáeinum mánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×