Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. apríl 2026 14:30 Dominik Szoboszlai og félagar í Liverpool eru úr leik í ensku bikarkeppninni. getty/Shaun Brooks Dominik Szoboszlai, leikmaður Liverpool, var ekki upplitsdjarfur eftir skellinn gegn Manchester City, 4-0, í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í dag. Ungverjinn sagði að Rauði herinn hefði ekki sýnt nógu mikinn baráttuanda í leiknum á Etihad.
Erling Haaland skoraði þrennu fyrir City í dag og Antoine Semenyo eitt mark. James Trafford varði vítaspyrnu Mohameds Salah skömmu eftir að Haaland kom City í 4-0. „Þegar þú gerir eitthvað og færð ekkert fyrir það gengur það ekkert upp. Við fengum færi en klúðruðum þeim og fengum á okkur ódýra vítaspyrnu. Við töpuðum 4-0. Við getum ekki fengið jafn mörk á okkur og við gerum. Það er ekkert að segja,“ sagði Szoboszlai eftir leikinn. „Það er erfitt að vinna hérna. Þegar þú ert 1-0 undir trúirðu ennþá en það er okkar klúður að koma inn í hálfleik eftir að hafa fengið á okkur mark á síðustu mínútunni. Í stöðunni 2-0 eru líkurnar hverfandi. Þú kemur út á völl og vilt sýna að þú getir komið til baka og þá færðu á þig þriðja markið. Upp frá því er erfitt að koma til baka.“ Verðum að standa saman Szoboszlai sagði að Liverpool-liðið hefði ekki verið nógu sterkt andlega í leiknum í dag. „Baráttuandinn var ekki nægur og hugarfarið var ekki nógu gott. Þetta er erfitt en við verðum að standa saman,“ sagði Szoboszlai sem átti fá svör aðspurður af hverju Liverpool-liðið hefði ekki verið betur samstillt í dag. „Ég veit ekki. Það er erfitt að finna orðin. Við vildum þetta svo mikið. En þú tapar 4-0 gegn City og það er ekki gott.“ Liverpool sækir Paris Saint-Germain heim í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn. Szoboszlai segir að leikmenn Liverpool verði að snúa bökum saman fyrir leikinn mikilvæga gegn Evrópumeisturunum. „Við verðum að gleyma þessu eins mikið og við getum og eins fljótt og við getum og halda áfram. Við verðum að berjast, leggja okkur fram og vera til staðar fyrir hvern annan og það vantar stundum,“ sagði Szoboszlai.
Enski boltinn Liverpool FC Tengdar fréttir Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. 4. apríl 2026 13:35 Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira
Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Erling Haaland skoraði þrennu þegar Manchester City vann öruggan sigur á Liverpool, 4-0, í fyrsta leik átta liða úrslita ensku bikarkeppninnar. Þetta er áttunda árið í röð sem City kemst í undanúrslit bikarkeppninnar. 4. apríl 2026 13:35