Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Freyja Þórisdóttir skrifar 4. apríl 2026 14:01 Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, ræddi við fulltrúa Evrópusambandsins í utanríkis- og öryggismálum á fundi utanríkisráðs ESB í Kænugarði í Úkraínu fyrr í vikunni. Rússar virðast hafa notið góðs af stríði Bandaríkjanna og Íran en þeir sækja enn hægt áfram í austurhluta Úkraínu. Samsett mynd/AP Rússneskur sjálfsprengidróni varð fimm mönnum að bana og særði 19 aðra í borginni Nikopol í austurhluta Úkraínu á laugardag en Rússar hafa hert árásir sínar að degi til í skugga stríðs Bandaríkjanna og Íran. Zelensky hefur boðið fram aðstoð vegna Hormússunds en hann segir Úkraínumenn hafa öðlast sérþekkingu í stríði sínu við Rússa.
Dróninn hæfði yfirbyggðan markað rétt fyrir klukkan tíu í morgun að staðartíma að sögn saksóknaraembættisins á svæðinu. Þessu greinir franski miðillinn France 24 frá á vef sínum. Þar segir einnig að héraðsstjórinn, Oleksandr Ganja, hafi sagt í færslu á Telegram að þrjár konur og tveir menn hefðu látist. Hann hafi bætt því við að 14 ára stúlka væri meðal þeirra 19 sem særðust og að hún berðist fyrir lífi sínu. Hundruðum dróna skotið á Úkraínu Úkraínski flugherinn sagði að sögn France 24 að Rússland hefði skotið 286 drónum aðfaranótt laugardags og að 260 þeirra hefði verið grandað. Þrír eru særðir eftir sprengingar í Dnipropetrovsk-héraði í austurhluta landsins, þar á meðal fimm mánaða gamalt ungbarn og sex ára drengur, hafi sagt Ganja fyrr á Telegram. Tyrklandsforseti Tayyip Erdogan, á hægri hönd, og Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, funduðu fyrr í dag í höfuðborginni Istanbúl.AP Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, er í Istanbúl í Tyrklandi að ræða við Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, um öryggissamvinnu, sagði úkraínskur embættismaður við AFP samkvæmt umfjöllun France 24. France 24 hefur eftir fréttaveitunni AFP að Zelensky hafi í vikunni gefið í skyn að hann væri reiðubúinn til vopnahlés yfir páskana. Kreml, höfuðstöðvar yfirvalda í Rússlandi, hafi hins vegar sagst ekki hafa fengið „skýrt mótaðar“ tillögur. Úkraína hefur sakað Rússland um að lengja stríðið til að ná meira landsvæði og segir Moskvu ekki hafa áhuga á friði. Viðræður milli stríðandi fylkinga, með milligöngu Bandaríkjanna, hafa stöðvast vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum. Í ummælum við fréttamenn, þar á meðal AFP, sem birt voru á föstudag, sagði Zelensky að hann hefði boðið bandarískri sendinefnd til Úkraínu til að hefja aftur samningaviðræður við Moskvu. „Sendinefndin mun gera allt sem hægt er við núverandi aðstæður, á meðan stríð geisar í Íran, til að komast til Kænugarðs,“ sagði Zelensky. Nýta sérþekkingu sína France 24 fjallar um það hvernig Úkraínumenn hafa undanfarið reynt að nýta sérþekkingu sína í baráttunni gegn rússneskum drónum. Þeir eru svipaðir þeim sem Íran hefur notað í hefndarárásum víðs vegar um Persaflóaríkin. Í síðustu viku heimsótti Zelensky nokkur lönd í Mið-Austurlöndum og undirritaði varnarsamninga við Katar og Sádi-Arabíu. Hann á þá einnig að hafa gefið í skyn að Úkraína gæti hjálpað til við að opna Hormússund, en lokun þess af hálfu Írans hefur hrist upp í heimshagkerfinu.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Tyrkland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira