Isak gæti spilað á móti Man City um helgina og Salah er heill Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2026 13:16 Alexander Isak og Virgil van Dijk sjást hér saman á æfngu á Skírdag. Getty/Andrew Powell/ Sænski framherjinn Alexander Isak gæti spilað í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar með Liverpool gegn Manchester City um páskahelgina eftir að hafa snúið aftur á æfingar liðsins 101 degi eftir aðgerð vegna fótbrots.
Isak, sem Liverpool keypti fyrir metfé, 125 milljónir punda, hefur verið frá keppni síðan 20. desember eftir að hafa fótbrotnað og farið í aðgerð á ökkla. Hinn 26 ára gamli sænski framherji, sem skoraði þrjú mörk í sextán leikjum fyrir Liverpool áður en hann meiddist gegn Tottenham, sneri aftur á fulla æfingu á fimmtudag. Aðalþjálfarinn Arne Slot sagði að Isak kæmi til greina til að spila „nokkrar mínútur“ – en sú ákvörðun gæti flækst vegna möguleikans á framlengingu í leiknum á Etihad-leikvanginum á morgun. 🚨 Alexander Isak is back available, Arne Slot confirms.“It will be too soon to expect Isak in the starting lineup after 101 days out……it will take a bit of time to give him a lot of minutes but we will make sure we do the right thing to build him up”. pic.twitter.com/MRe4TBGYiW— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 3, 2026 „Það mun taka smá tíma að gefa honum margar mínútur en við munum gera það rétta í stöðunni hvað varðar að byggja upp spilatíma hans,“ sagði Slot um Isak. „Þetta er erfitt því við erum ekki að spila venjulegan leik. Það gæti farið í framlengingu svo það gerir þetta enn flóknara, ef við teljum að hann geti aðeins spilað tíu mínútur og setjum hann inn á og svo fer leikurinn í framlengingu,“ sagði Slot. „Kannski getur hann spilað nokkrar mínútur en við skulum bíða og sjá hvernig hann er í dag, hvernig honum líður með þetta sjálfum. Það er ljóst að eftir tvær æfingar á hundrað dögum væri engin skynsemi í því að láta hann byrja á morgun,“ sagði Slot. Isak fór í aðgerð vegna ökklameiðsla sem innihéldu dálksbeinbrot sem hann hlaut eftir tæklingu frá Micky van de Ven þegar Isak skoraði gegn Tottenham í 2-1 sigri. Alexander Isak is "much stronger" than before his leg fracture, Arne Slot has claimed 💪The striker's return to training has made the Liverpool boss "really, really, really happy" 😄 pic.twitter.com/cSh9pSJSi6— Match of the Day (@BBCMOTD) April 3, 2026 „Ef ég horfi á hann núna samanborið við hvar hann var áður en hann meiddist, sé ég leikmann sem er mun sterkari og líkamlega á mun betri stað,“ sagði Slot. „Ég held ég hafi sagt mörgum sinnum að á næsta tímabili, þegar hann hefur farið í gegnum undirbúningstímabil, getum við búist við meiru af honum en núna. En jafnvel eins og hann er núna er það nú þegar stórt skref fram á við fyrir okkur miðað við hvernig hann var þegar hann kom,“ sagði Slot Aðalmarkvörður Liverpool, Alisson, er enn frá keppni og Slot sagði á blaðamannafundinum að hann byggði ekki vonir við að hafa brasilíska landsliðsmanninn aftur tiltækan fyrr en undir lok tímabilsins. En Mohamed Salah er heill heilsu til að mæta Manchester City og gæti spilað sinn fyrsta leik síðan hann tilkynnti að hann myndi yfirgefa Liverpool í sumar.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira