Isak fær að æfa með liðsfélögunum aftur Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. apríl 2026 08:00 Alexander Isak verður með á æfingu Liverpool í dag. Peter Byrne/PA Images via Getty Images Alexander Isak mun taka þátt í sinni fyrstu liðsæfingu með Liverpool í dag síðan hann fótbrotnaði.
Sænski framherjinn varð fyrir ljótri tæklingu frá Micky van de Ven þegar hann skoraði opnunarmarkið í 2-1 sigri Liverpool gegn Tottenham í desember síðastliðnum. Isak fótbrotnaði og hefur verið frá síðan. Hann átti heldur enga draumabyrjun í Liverpool-búningnum, glímdi við meiðsli, var í lélegu í leikformi og náði lítið að heilla. Nú horfir loks til betri tíma hjá dýrasta leikmanni í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. „Hann mun æfa með liðinu í fyrsta sinn [í dag],“ sagði Arne Slot, þjálfari Liverpool. Micky van de Ven fótbraut Alexander Isak með þessari tæklingu. Vísir/Getty „Þegar þú hefur lagt svona hart að þér í þrjá eða fjóra mánuði og færð loksins að snúa aftur á liðsæfingu, það er auðvitað frábært fyrir alla. Þannig að við getum sagt að Alex sé á mjög góðum stað. Auðvitað er þetta bara fyrsta æfingin hans eftir þrjá eða fjóra mánuði í burtu en við vitum hvað við höfum og hann er frábær framherji. Að fá hann aftur inn í lið, sem er að skapa fullt af færum, hann kemur kannski ekki til baka alveg strax, en að fá hann aftur inn í liðið gæti hjálpað okkur heilmikið,“ bætti Slot við. Næsti leikur Liverpool er gegn Manchester City á laugardag. Alexander Isak verður ekki klár í slaginn fyrir þann leik, þó hann sé byrjaður að æfa aftur, og spurning er með Mohamed Salah og Federico Chiesa. Salah varð fyrir meiðslum í leik gegn Galatasaray og Chiesa var ekki heill heilsu þegar hann kom til móts við ítalska landsliðið í landsleikjahlénu. Þá gæti Jeremie Frimpong líka misst af leiknum en hann fór meiddur af velli í leik Hollands og Ekvador á dögunum. Vitað er allavega að markmaðurinn Alisson verður fjarverandi gegn Manchester City en Slot vonar „að hann snúi bráðum aftur.“
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Enski boltinn Tielemans biðst afsökunar Enski boltinn „Eyðileggur íþróttina“ Sport Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Fleiri styðja UEFA frekar en Infantino Fótbolti Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Golf Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti Fleiri fréttir Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Sjá meira