Fjárfestum í verðmætasköpun Ragnar Sigurðsson skrifar 1. apríl 2026 12:31 Verðmætasköpun er ekki sjálfbær nema innviðir fylgi þróun. Kröftugt atvinnulíf kallar á stöðuga og markvissa uppbyggingu á samgöngum, heilbrigðisþjónustu og orkuöflun. Þetta eru ekki staðbundnir hagsmunir heldur forsendur gjaldeyrisöflunar Íslands og grunnur lífskjara um land allt. Fyrsti áfangi Suðurfjarðarvegar á Austfjörðum er skýrt dæmi. Bættar samgöngur stuðla ekki aðeins að auknu öryggi borgaranna heldur styrkja einnig rekstrarskilyrði útflutningsgreina, kostnaður lækkar og samkeppnishæfni eykst. Slík framkvæmd er ekki kostnaður, heldur arðbær fjárfesting. Sama á við um hafnir. Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur ráðist í kröftuga uppbyggingu hafnarmannvirkja án aðkomu Hafnbótasjóðs því við lítum svo á að uppbyggingin sé fjárfesting. Það er skýr viljayfirlýsing um að svæðið skuli búið undir næsta vaxtarskeið. Áhugi fjárfesta er til staðar. Hvort sem litið er til laxeldis, olíuleitar, flutninga eða grænna orkugarða svo fátt eitt sé nefnt. Tækifærin eru raunveruleg. En stærri ákvarðanir bíða ríkisins. Áframhaldandi uppbygging fyrir verðmætasköpun krefst orkuöflunar og skýrrar stefnu varðandi nýtingu auðlinda. Fjárfestingar eru háðar fyrirsjáanleika í leyfisveitingum og orkuöryggi. Séu ákvarðanir ekki teknar leitar fjárfestingin annað. Við í Fjarðabyggð erum reiðubúin. Við höfum byggt upp aðstöðu og getu. Við viljum axla ábyrgð og taka þátt í áframhaldandi verðmætasköpun. Það krefst samstillts átaks. Uppbygging innviða eru ekki krafa um sérmeðferð. Þeir eru forsenda þess að tekjugrunnur þjóðarinnar haldi áfram að styrkjast. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjarðabyggð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Ragnar Sigurðsson Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Sjá meira
Verðmætasköpun er ekki sjálfbær nema innviðir fylgi þróun. Kröftugt atvinnulíf kallar á stöðuga og markvissa uppbyggingu á samgöngum, heilbrigðisþjónustu og orkuöflun. Þetta eru ekki staðbundnir hagsmunir heldur forsendur gjaldeyrisöflunar Íslands og grunnur lífskjara um land allt. Fyrsti áfangi Suðurfjarðarvegar á Austfjörðum er skýrt dæmi. Bættar samgöngur stuðla ekki aðeins að auknu öryggi borgaranna heldur styrkja einnig rekstrarskilyrði útflutningsgreina, kostnaður lækkar og samkeppnishæfni eykst. Slík framkvæmd er ekki kostnaður, heldur arðbær fjárfesting. Sama á við um hafnir. Sveitarfélagið Fjarðabyggð hefur ráðist í kröftuga uppbyggingu hafnarmannvirkja án aðkomu Hafnbótasjóðs því við lítum svo á að uppbyggingin sé fjárfesting. Það er skýr viljayfirlýsing um að svæðið skuli búið undir næsta vaxtarskeið. Áhugi fjárfesta er til staðar. Hvort sem litið er til laxeldis, olíuleitar, flutninga eða grænna orkugarða svo fátt eitt sé nefnt. Tækifærin eru raunveruleg. En stærri ákvarðanir bíða ríkisins. Áframhaldandi uppbygging fyrir verðmætasköpun krefst orkuöflunar og skýrrar stefnu varðandi nýtingu auðlinda. Fjárfestingar eru háðar fyrirsjáanleika í leyfisveitingum og orkuöryggi. Séu ákvarðanir ekki teknar leitar fjárfestingin annað. Við í Fjarðabyggð erum reiðubúin. Við höfum byggt upp aðstöðu og getu. Við viljum axla ábyrgð og taka þátt í áframhaldandi verðmætasköpun. Það krefst samstillts átaks. Uppbygging innviða eru ekki krafa um sérmeðferð. Þeir eru forsenda þess að tekjugrunnur þjóðarinnar haldi áfram að styrkjast. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar