Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Freyja Þórisdóttir skrifar 31. mars 2026 22:05 Shelly Kittleson er verðlaunaður sjálfstætt starfandi blaðamaður sem hefur undanfarin ár starfað fyrir miðla á borð við Politico og Al-Monitor við það að skrifa fréttir af átakasvæðum. Shelly Kittleson/X Sjálfstætt starfandi blaðamanni hefur verið rænt í Bagdad, höfuðborg Íraks, og er einn hinna grunuðu tengdur vígahópnum Kataib Hezbollah, að sögn írakskra og bandarískra embættismanna.
Þetta kemur fram í umfjöllun Breska ríkisútvarpið (BBC) en þar er greint frá því að blaðamaðurinn sé hin bandaríska Shelly Kittleson. Hún hafi undanfarið skrifað greinar fyrir fréttamiðilinn Al-Monitor. Embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneytinu sagði að sögn BBC að einstaklingur með tengsl við vígahópinn Kataib Hezbollah, sem sé hliðhollur Íran, hafi verið handtekinn af íröskum yfirvöldum. Reyndu að vara hana við Dylan Johnson, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna á sviði alþjóðasamskipta, staðfesti mannránið, en þó einungis á ónefndum bandarískum blaðamanni. CCTV video shows the moment American journalist @shellykittleson was taken in Baghdad. pic.twitter.com/JqJcdW7TOb— Trey Yingst (@TreyYingst) March 31, 2026 Hann birti færslu á miðlinum X þar sem hann segir að Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafi reynt að vara Kittleson við. „Utanríkisráðuneytið uppfyllti áður skyldu sína um að vara þennan einstakling við ógnum gegn honum og við munum halda áfram að samræma aðgerðir með FBI til að tryggja lausn hans eins fljótt og auðið er,“ segir í færslunni. Skipuleggja morð á kvenkyns blaðamönnum Neyðartengiliður Kittleson, Alex Plitsas, þjóðaröryggissérfræðingur hjá CNN, sagði sömuleiðis við fréttastofu bandaríska miðilsins CBS að bandarísk stjórnvöld hefðu varað Kittleson við aukinni ógn. Það væri þá helst vegna þess að vígahópurinn Kataib Hezbollah hafi nýlega verið sagður skipuleggja mannrán og jafnvel morð á kvenkyns blaðamönnum. BBC hefur eftir öðrum heimildamanni sínum að staðfest væri að Kittleson hafi verið sagt frá áhættunni en hún hafii talið að það væru rangar upplýsingar. Því er bætt við í umfjöllun BBC að bandarískir embættismenn eigi að hafa haft samband við Kittleson meðal annars seint á mánudagskvöld. Unnið á hæsta stigi Al-Monitor, sem er með höfuðstöðvar í Bandaríkjunum, sagði að staðbundnar fréttir bendi til þess að Kittleson hafi verið tekin nálægt hóteli í hjarta höfuðborgarinnar. BBC segir fulltrúa Al-Monitor hafa sagst vera „mjög uggandi“ vegna mannránsins og kallað „eftir því að henni yrði sleppt heilli á húfi og tafarlaust“. Írakskur embættismaður staðfesti við CBS, bandarískan samstarfsaðila BBC, að staðbundin yfirvöld ynnu „á hæsta stigi“ að því að frelsa Kittleson.
Írak Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira