Markvissar aðgerðir til að styrkja landamæri Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar 1. apríl 2026 07:33 Á rúmu ári hefur ríkisstjórnin tekið af skarið í útlendingamálum. Við höfum styrkt landamæraeftirlit, eflt lögreglu og breytt verklagi. Þegar ég tók við embætti dómsmálaráðherra blasti algert stefnuleysi við í útlendingamálum. Það blasti líka við að ekkert hafði gerst í fangelsismálum um árabil. Margt af því sem við stöndum frammi fyrir í dag er augljós afleiðing þess að ríkisstjórnin var sundruð í þessum málaflokkum. Skilaboð síðustu ríkisstjórnar voru aldrei skýr í þessum efnum og það voru aðgerðir þeirra ekki heldur. Almenningur upplifði stjórnleysi og tiltrú á kerfið fór minnkandi. Við heyrum nú orð Sjálfstæðismanna sem tala um hver þeirra afstaða hafi verið. Vandamálið er bara að ríkisstjórn er ekki málstofa. Ríkisstjórn verður að geta hrint stefnu í framkvæmd. Það erum við nú að gera. Skref fyrir skref. Öryggi fólksins í landinu er frumskylda ríkisins. Við tökum þessu verkefni alvarlega. Stefna og aðgerðir fara nú saman Í síðustu viku varð þýðingarmikið frumvarp um Schengen-upplýsingakerfið að lögum. Hvað erum við að gera með þessari breytingu? Við erum að styrkja landamæraeftirlit. Við erum að veita lögreglu aðgang að mikilvægum upplýsingum í rauntíma. Greiningargeta lögreglu eflist enn frekar og viðbragðsgeta er aukin gegn skipulagðri glæpastarfsemi og hryðjuverkum. Þetta gerum við með skilvirku samstarfi við önnur aðildarríki Schengen og Europol. Schengen-upplýsingakerfið er eitt mikilvægasta verkfæri Evrópu í löggæslu- og öryggismálum. Kerfið tryggir öryggi með miðlun upplýsinga milli ríkja, m.a. í þeim tilgangi að koma í veg fyrir og uppræta brotahópa. Aðgerðir gegn glæpastarfsemi Lögum þarf að fylgja í framkvæmd. Þess vegna höfum við þegar ráðist í aðgerðir sem styðja við raunverulegar breytingar. Frumvarp mitt um farþegalista er orðið að lögum. Lögin skylda flugfélög til að afhenda alla farþegalista. Það er sjálfsögð krafa að við vitum hverjir koma til landsins. Við höfum fjölgað lögreglumönnum. Viðhöfum kynnt fyrstu heildarstefnu Íslands gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Nýlegar aðgerðir íslensku lögreglunnar í samvinnu við önnur ríki og Europol þar sem fjölþjóðlegur glæpahópur var upprættur sýna mikilvægi þess að evrópsk ríki vinni saman til að tryggja öryggi borgaranna. Ísland á ekki að vera veikur hlekkur í alþjóðlegu samhengi. Brottvísanir og endurkomubann Fólk í landinu les nú reglulega fréttir af því að glæpamönnum hafi verið brottvísað af landinu. Það hefur markvisst verið unnið að því að brottvísa EES-borgurum sem hafa gerst sekir um afbrot. Frjáls för fólks felur ekki í sér frjálsa för glæpamanna. Við ætlum líka að brottvísa erlendum föngum með litla eða enga tengingu við Ísland. Frumvarp þess efnis mun gera að verkum að tugir glæpamanna verði sendir úr landi. Brottvísunum fylgir alltaf endurkomubann til landsins og jafnvel inn á Schengen-svæðið allt. Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur tekið markviss skref til að stemma stigu við glæpum í landinu. Ísland á að vera samfélag sem stendur vörð um mannréttindi og alþjóðlegar skuldbindingar. Ísland á líka að standa vörð um öryggi, réttarríkið og traust almennings. Þessi tvö sjónarmið útiloka ekki hvort annað, heldur eru þau grunnurinn að frjálslyndu samfélagi. Höfundur er dómsmálaráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Landamæri Mest lesið Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar