Árásarmenn teknir af lífi innan 90 daga Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. mars 2026 06:46 Ben-Gvir fagnaði samþykkt frumvarpsins á samfélagsmiðlum og sagði um að ræða sögulegan áfanga. Getty/Chip Somodevilla Samkvæmt nýju lögum sem samþykkt voru í Ísrael í gær munu allir þeir Palestínumenn sem fundnir eru sekir um hryðjuverkaárás þar sem mannskaði hlýst af verða teknir af lífi.
Lögin voru samþykkt á þinginu með 62 atkvæðum gegn 48, þrátt fyrir mótmæli stjórnarandstöðunnar og gagnrýni erlendra ríkja. Samkvæmt frumvarpinu verða allir þeir sem herdómstóll finnur seka um árásir sem flokka má sem „hryðjuverk“ teknir af lífi innan 90 daga. Undir ákveðnum kringumstæðum má fresta framkvæmd refsingarinnar í allt að 180 daga. Tæknilega séð ná lögin einnig til ísraelskra ríkisborgara en leiða má líkur að því að flestir þeir sem falla undir lögin verði Palestínumenn, enda ná þau eingöngu til árása þar sem ætlunin var að grafa undan tilveru Ísrael. Itamar Ben-Gvir, ráðherra þjóðaröryggismála, var meðal hörðustu stuðningsmanna frumvarpsins og hefur meðal annars gengið um með nælu í formi snöru til að auglýsa afstöðu sína. Samflokkskona Ben-Gvir, Limor Son-Har-Melech, sagði frumvarpið nauðsyn en hún og eiginmaður hennar urðu fyrir nokkrum árum fyrir skotárás af hálfu Palestínumanna. Eiginmaður hennar lést í árásinni en einum morðingjanna var sleppt og tók síðar þátt í árásunum 7. október 2023. Þingkonan sagði tímabært að rjúfa þann vítahring sem skapaðist þegar „þessum mennsku skrímslum“ væri sleppt aðeins til að myrða fleiri gyðinga. Stjórnarandstöðuleiðtoginn Yair Golan segir lagasetninguna hins vegar ekki munu gera neitt til að efla öryggi Ísrael. Hún myndi aðeins leiða til refsiaðgerða af hálfu erlendra ríkja. Stjórnvöld í Bretlandi, Frakklandi, Þýskalandi og Ítalíu lýstu áhyggjum af málinu í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar og sögðu lögin myndu grafa undan lýðræðisskuldbindingum Ísrael. Þá hafa bæði Palestínska heimastjórnin og Hamas lýst áhyggjum vegna málsins og segja lögin meðal annars ógn gagnvart palestínskum föngum í fangelsum í Ísrael.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira