Handbolti

Fékk starfið sem Guð­mundur var orðaður við

Aron Guðmundsson skrifar
Guðmundur Guðmundsson er án starfs þessa stundina eftir að leiðir hans og Fredericia skildu 
Guðmundur Guðmundsson er án starfs þessa stundina eftir að leiðir hans og Fredericia skildu  Vísir/Vilhelm

Andy Schmid, landsliðsþjálfari karlaliðs Sviss í handbolta hefur verið ráðinn þjálfari HC Krienz-Luzern í Sviss. Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands var orðaður við starfið fyrir ekki svo löngu síðan.

Schmid mun sinna þjálfun HC Krienz-Luzern samhliða þjálfun svissneska landsliðsins en hann var sjálfur á mála hjá félaginu á sínum tíma sem leikmaður.

Andy Schmid á hliðarlínunni í leik hjá Sviss á EM í upphafi árs.Vísir/Getty

Í svissneskum miðlum fyrir ekki svo löngu síðan var Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands og nú síðast þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Fredericia orðaður við starfið.

Í samtali við íþróttadeild Sýnar undir lok nóvember á síðasta ári sagðist Guðmundur ekki loka á neitt hvað varðar framhaldið í þjálfun en að það kæmi einnig til greina að snúa sér að einhverju allt öðru.

Þjálfarinn reynslumikli hefur varið miklum tíma hér heima á Íslandi eftir að leiðir hans og Frederica skildu.

„Undan­farin sex­tán ár hefur mér liðið eins og ég sé gestur í mínu eigin heima­landi. Ég hef verið að koma hingað í stuttan tíma yfir jólin og fer svo aftur. Yfir sumartímann hafa verið mis­löng fríin, allt niður í þrjár vikur. Þá er maður að reyna gera allt mögu­legt á stuttum tíma og hefur aldrei liðið eins og maður sé heima. Þetta er í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem mér líður eins og ég sé kominn heim.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×