Samfella í verki - Framtíðarsýn Okkar Hveragerðis Sandra Lind Brynjarsdóttir, Jónas Guðnason, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Lárus Jónsson skrifa 29. mars 2026 11:31 Í gær, á 8 ára afmælisdegi bæjarmálafélagsins Okkar Hveragerðis, kynntum við með stolti framboðslista Okkar Hveragerðis fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Það eru mikil gleðitíðindi að staðfesta að Pétur G. Markan er bæjarstjóraefni listans. Með því því viljum við tryggja áframhaldandi fagmennsku og samvinnu um þau mikilvægu verkefni sem hann hefur leitt í samstarfi við kjörna fulltrúa í þágu allra bæjarbúa. Stjórnun bæjarfélags er liðsvinna. Á síðustu árum höfum við náð árangri sem sést og finnst í daglegu lífi bæjarbúa. Með öguðum rekstri og markvissri fjölgun tekjustofna var neikvæðum 356 milljóna króna rekstri A og B hluta frá árinu 2021 snúið í 168 milljóna króna hagnað árið 2024. Þessi 524 milljóna króna viðsnúningur byggir á hugrakkri sókn þar sem vöxtur bæjarins hefur verið nýttur til að styrkja sameiginlega sjóði, m.a. með stórum samningum eins og um uppbyggingu á Árhólmasvæðinu. Sú fjárfesting mun skila bænum hátt í milljarði króna. Með því að stækka tekjugrunninn án þess að íþyngja íbúum hefur skapast svigrúm fyrir umfangsmikla bætingu á þjónustu við bæjarbúa á öllum aldri: Fjölskyldan í fyrirrúmi: Öllum börnum frá 12 mánaða aldri hefur verið tryggt leikskólapláss, leikskólagjöld lækkuð um 70%, gjaldfrjálsar skólamáltíðir innleiddar og frístundastyrkurinn tvöfaldaður. Framkvæmdir: Nýjar viðbyggingar við Óskaland og grunnskólann hafa verið teknar í notkun, nýr gervigrasvöllur opnar nú á vormánuðum og nýtt íþróttahús rís af krafti ásamt því að gatnagerð mikilvægra stofnbrauta og nýrra hverfa er í fullum gangi. Virðing fyrir eldri kynslóðinni: Ný og öflug stefna hefur verið sett í málefnum eldri borgara og með verkefninu „Gott að eldast“ og nýjum þjónustusamningum hefur aðstaða og öryggi eldri borgara styrkst til muna. Jafnframt hefur verið stofnaður undirbúningshópur sem mun skila forsendum fyrir glæsilegum nýjum þjónustukjarna til eflingar þjónustu við eldri íbúa. Þetta er aðeins hluti þeim fjölmörgu verkefnum sem unnist hafa á kjörtímabilinu. Á okkarhveragerdi.is má finna nánari upplýsingar um margvísleg verkefni kjörtímabilsins og framtíðarstefnu okkar fyrir Hveragerðisbæ. Það eru spennandi tímar í Hveragerði, bæjarfélagi í örum vexti. Stærsta áskorunin framundan er að tryggja að innviðirnir haldi í við fjölgun íbúa án þess að fórna skynsamlegum rekstri. Þá skiptir dýrmæt reynsla og fagmennska kjörinna fulltrúa miklu máli sem og áframhaldandi samvinna við bæjarstjórann Pétur G. Markan. Við ætlum að halda áfram að sækja þau tækifæri sem við búum að hér í Hveragerði og verja hagsmuni bæjarins af festu - hvort sem það er gagnvart virkjanaáformum í Ölfusdal eða í þrýstingi á ríkið vegna samgöngumála og hjúkrunarrýma. Við bjóðum fram krafta okkar til að halda vegferðinni áfram. Við ætlum að halda áfram að byggja á öflugum grunni, klára mikilvæg verkefni og sækja ný tækifæri af krafti. Gerum þetta saman fyrir Hveragerði! Frambjóðendur í 1.–4. sæti Okkar Hveragerðis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar