Donni sótti mikilvægt stig gegn lærisveinum Arnórs Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. mars 2026 16:45 Landsliðsmaðurinn Donni skoraði eitt mark fyrir Skanderborg í leiknum gegn Holstebro. Vísir/Vilhelm Lokaumferðin í deildarkeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta fór fram í dag.
Aalborg var löngu búið að tryggja sér efsta sætið en Skanderborg og GOG voru enn í baráttu um annað sætið. Skanderborg, lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar, þurfti sigur eða jafntefli gegn Holstebro, lærisveinum Arnórs Atlasonar. Skanderborg var yfir eiginlega allan leikinn en missti sigurinn frá sér á lokamínútunum. Liðið lenti einu marki undir og allt stefndi í tap en Mikkel Jensen skoraði jöfnunarmark á lokamínútunni og tryggði jafnteflið. Skanderborg endar því í öðru sæti deildarinnar en GOG þarf að sætta sig við þriðja sætið. Það var mikilvægt fyrir Skanderborg að ná öðru sætinu því toppliðin tvö taka tvö stig með sér þegar deildinni er skipt upp en liðin í þriðja og fjórða sæti taka aðeins eitt stig með sér. Kristján Örn, Donni, skoraði eitt mark fyrir Skanderborg í leiknum. Líkt og Jóhannes Berg Andrason gerði fyrir Holstebro. Guðmundur Bragi og Ísak enda í neðri hlutanum Guðmundur Bragi Ástþórsson, Ísak Gústafsson og félagar í TMS Ringsted þurftu að sætta sig við tap gegn toppliði Aalborg í lokaumferðinni. Ringsted rétt missir því af úrslitakeppninni og endar í neðri hluta deildarinnar. Sömu sögu er að segja af Elvari Ásgeirssyni og félögum í Ribe-Esbjerg. Þeir enda í neðri hluta deildarinnar en áttu ekki möguleika á því að vinna sig ofar í lokaumferðinni.
Danski handboltinn Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Fótbolti Hrafnhildur til starfa hjá Sundsambandi Íslands Sport Fleiri fréttir „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Sjá meira