Handbolti

Donni sótti mikil­vægt stig gegn læri­sveinum Arnórs

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Landsliðsmaðurinn Donni skoraði eitt mark fyrir Skanderborg í leiknum gegn Holstebro. 
Landsliðsmaðurinn Donni skoraði eitt mark fyrir Skanderborg í leiknum gegn Holstebro.  Vísir/Vilhelm

Lokaumferðin í deildarkeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta fór fram í dag.

Aalborg var löngu búið að tryggja sér efsta sætið en Skanderborg og GOG voru enn í baráttu um annað sætið.

Skanderborg, lið Kristjáns Arnar Kristjánssonar, þurfti sigur eða jafntefli gegn Holstebro, lærisveinum Arnórs Atlasonar.

Skanderborg var yfir eiginlega allan leikinn en missti sigurinn frá sér á lokamínútunum. Liðið lenti einu marki undir og allt stefndi í tap en Mikkel Jensen skoraði jöfnunarmark á lokamínútunni og tryggði jafnteflið.

Skanderborg endar því í öðru sæti deildarinnar en GOG þarf að sætta sig við þriðja sætið.

Það var mikilvægt fyrir Skanderborg að ná öðru sætinu því toppliðin tvö taka tvö stig með sér þegar deildinni er skipt upp en liðin í þriðja og fjórða sæti taka aðeins eitt stig með sér.

Kristján Örn, Donni, skoraði eitt mark fyrir Skanderborg í leiknum. Líkt og Jóhannes Berg Andrason gerði fyrir Holstebro.

Guðmundur Bragi og Ísak enda í neðri hlutanum

Guðmundur Bragi Ástþórsson, Ísak Gústafsson og félagar í TMS Ringsted þurftu að sætta sig við tap gegn toppliði Aalborg í lokaumferðinni.

Ringsted rétt missir því af úrslitakeppninni og endar í neðri hluta deildarinnar.

Sömu sögu er að segja af Elvari Ásgeirssyni og félögum í Ribe-Esbjerg. Þeir enda í neðri hluta deildarinnar en áttu ekki möguleika á því að vinna sig ofar í lokaumferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×