Óvænt byrjunarlið hjá enska landsliðinu í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2026 19:42 Phil Foden fær ekki að spila mikið hjá Manchester City en hann byrjar hjá enska landsliðinu í kvöld. Getty/Michael Regan Það styttist í heimsmeistaramótið í fótbolta og enska landsliðið spilar einn sinn síðasta undirbúningsleik á Wembley í kvöld. Við fáum að sjá öðruvísi byrjunarlið í þessum leik.
Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, hefur gert fjölda breytinga og býður upp á tilraunakennd byrjunarlið í vináttulandsleik á móti Úrúgvæ í kvöld. Harry Maguire og Fikayo Tomori byrja saman í miðverðinum. James Trafford og James Garner leika sinn fyrsta leik fyrir England og Phil Foden fær tækifærið til að byrja í stöðu tíunnar. James Trafford var ekki einu sinni í upprunalega hópnum í nóvember en varamarkvörður Man City er í byrjunarliðinu frekar en Jordan Pickford og leikur sinn fyrsta leik fyrir England. Djed Spence er annar sem vekur athygli en hann er í vinstri bakverði. Hann hefur spilað þá stöðu vel áður fyrir félagslið og landslið en sumum fannst þetta ætti að vera tækifæri fyrir Lewis Hall að reyna að tryggja sér sætið áður en Nico O'Reilly kemur aftur inn í hópinn á þriðjudag. Your #ThreeLions for the first time in 2026 ❤️ pic.twitter.com/4K19bU4QWE— England (@England) March 27, 2026 James Garner er inni á miðjunni ásamt hinum reynda fyrirliða, Jordan Henderson. Þetta er fyrsti landsleikur hans en er um leið áfall fyrir bæði Kobbie Mainoo og Adam Wharton, sem hefðu vonast til að láta til sín taka í fjarveru Elliot Anderson og Declan Rice. Phil Foden fær síðan enn eitt tækifærið til að sýna að hann geti staðið sig á alþjóðavettvangi. Hann kemst ekki í lið Pep Guardiola í stóru leikjunum um þessar mundir. Fyrrverandi fyrirliði Englands, Wayne Rooney, kallaði stutta innkomu hans í bikarúrslitaleiknum „eins og skiptingu í góðgerðarleik“. Foden spilaði vel sem fölsk nía fyrir landsliðið í nóvember og fær hann stórt tækifæri í kvöld á kostnað Cole Palmer. Dominic Solanke vinnur síðan baráttuna við Dominic Calvert-Lewin um að styrkja stöðu sína sem varaskeifa fyrir Harry Kane. Leikurinn er sýndur beint á SÝN Sport Viaplay. Byrjunarlið Englands í kvöld: Trafford, Livramento, Tomori, Maguire, Spence, Henderson, Garner, Foden, Madueke, Rashford, Solanke Varamenn: Ramsdale, Pickford, Steele, Hall, Wharton, Stones, Palmer, White, Mainoo, Calvert-Lewin, Barnes, Bowen.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira