„Salah gæti spilað í sjö ár í viðbót“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2026 18:24 Jürgen Klopp og Mohamed Salah átti mörg frábær ár með Liverpool og það var Klopp sem fékk hann til félagsins á sínum tíma. Getty/Chris Brunskill/ Jürgen Klopp, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Mohamed Salah gæti haldið áfram að spila til fertugs eftir að framherjinn tilkynnti að hann myndi yfirgefa Liverpool í lok tímabilsins.
Klopp, sem yfirgaf Anfield árið 2024, var knattspyrnustjórinn sem keypti Salah til Liverpool frá ítalska liðinu Roma árið 2017. Egypski kantmaðurinn, sem er orðinn 33 ára gamall, hefur síðan þá skorað 255 mörk fyrir Liverpool og aðeins Ian Rush og Roger Hunt eru á undan honum á lista félagsins yfir markahæstu leikmenn félagsins frá upphafi. Salah er ótrúlegur atvinnumaður „Salah er ótrúlegur atvinnumaður. Hann setti alveg ný viðmið fyrir atvinnumann í fótbolta, hversu mikið maður getur lagt á sig og hversu mikið maður getur fjárfest í endurheimt og öllu slíku,“ sagði Klopp í viðtali við BBC Sport fyrir góðgerðarleik LFC Legends Þjóðverjinn bætti við: „Nú fer hann héðan en ég myndi ekki vera hissa ef hann spilar í sex eða sjö ár í viðbót. Ég er leiður yfir þessu en hann er án efa einn sá allra besti hjá félaginu og ég er mjög stoltur af því að vera hluti af því ferli,“ sagði Klopp. "The numbers he produced, the standards he set... they will stay unmatched." 🔴Jurgen Klopp reacts to Mo Salah's decision to leave Liverpool in the summer 🗣️ pic.twitter.com/8ObzVP9sM4— BBC Sport (@BBCSport) March 27, 2026 Klopp og Salah unnu saman úrvalsdeildina, Meistaradeildina, enska bikarinn, tvo deildarbikara, UEFA Ofurbikarinn og heimsmeistarakeppni félagsliða. Fullkomið félag fyrir hann „Hann veit að þetta var fullkomið félag fyrir hann og hann var fullkominn leikmaður fyrir okkur,“ sagði Klopp. „Mo og ég áttum stóra drauma en við þorðum samt ekki að dreyma svona stórt. Ég er ekki viss um að við getum metið það að verðleikum en það mun gerast fljótlega núna. Ég óska honum alls hins besta því hann á það skilið,“ sagði Klopp. Hinn 58 ára gamli Klopp bætti við að Salah væri „einn besti“ atvinnumaðurinn og einstaklingurinn sem hann hefur hitt. Rifust um daginn „Við sendum SMS-skilaboð um daginn og við rifumst stundum en það var alltaf af réttum ástæðum. Það er alltaf í lagi, sérstaklega núna þegar ég lít til baka, það er meira en í lagi. Við erum báðir mjög ánægðir með að vera hluti af þessu ótrúlega ferðalagi,“ sagði Klopp. „Sanngjarn samningur“ Aðspurður hvort þetta væri rétti tíminn fyrir Liverpool og Salah að skilja leiðir, þar sem kantmaðurinn á enn eitt ár eftir af samningi sínum, sagði Klopp að það væri „sanngjarn samningur“. „Það snýst ekki um mig að taka þá ákvörðun en ég held virkilega að allt sambandið hafi verið sanngjarnt. Hann var framúrskarandi leikmaður, skilaði flottum tölum og hann þénaði auðvitað peninga. Nú getur hann farið hvert sem hann vill og félagið verður að finna og mun finna aðra leikmenn, og það er alveg í lagi,“ sagði Klopp. „Eftir öll þessi ár ætti ekkert neikvætt viðhorf að vera til staðar og frá mínum bæjardyrum séð þá veit ég ekki hvað það ætti að vera,“ sagði Klopp.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira