Eva Signý og Aníta til starfa hjá Borgarleikhúsinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. mars 2026 11:05 Eva Signý Berger og Aníta Ólafsdóttir starfa nú hjá Borgarleikhúsinu. Aðsend Borgarleikhúsið hefur ráðið Evu Signýju Berger í stöðu yfirhönnuðar hússins og Anítu Ólafsdóttur sem viðburðastjóra.
Aníta hóf störf fyrr á leikárinu og hefur jafnframt yfirumsjón með rekstri veitingadeildar Borgarleikhússins. Hún starfaði áður hjá Hilton Reykjavík Nordica sem ráðstefnu- og viðburðastjóri. Áður starfaði Aníta hjá viðburðafyrirtækinu Practical auk annarra fjölbreyttra starfa innan íslenskrar ferðaþjónustu. Í fréttatilkynningu frá Borgarleikhúsinu segir að markmið ráðningar viðburðastjóra sé meðal annars að leggja aukna áherslu á fjölbreytt ráðstefnu- og viðburðahald í leikhúsinu auk þess að efla þjónustustig við leikhúsgesti. „Við viljum að fólk gefi sér góðan tíma í leikhúsinu; mæti snemma og njóti þess að fá sér veitingar í föstu og fljótandi formi auk þess sem það er kjörið að setjast á leikhúsbarinn að lokinni sýningu, gæða sér á drykk og njóta í góðra vina hópi,“ er haft eftir Anítu. Sem yfirhönnuður Borgarleikhússins mun Eva Signý Berger hafa yfirumsjón með útliti leikhússins og verður tengiliður við leikmynda- og búningahöfunda í leiksýningum Leikfélags Reykjavíkur. Samhliða því mun hún einnig sjá um hönnun leikmynda í tveimur verkefnum á ári. Eva hefur hannað yfir fimmtíu sýningar fyrir leikhús, dans, brúðuleikhús og óperu. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar, íslensku sviðslistarverðlaunanna, fyrir störf sín. Eva hefur jafnframt komið að myndlistar- og kvikmyndaverkefnum og sat í stjórn FÍL árin 2018 til 2026. Þá hefur hún verið formaður Félags leikmynda- og búningahöfunda frá árinu 2021. „Við erum afar ánægð að fá Evu Signýju og Anítu til liðs við Borgarleikhúsið. Eva Signý hefur umsvifamikla þekkingu og reynslu sem hönnuður og hefur komið að mörgum sýningum í Borgarleikhúsinu. Hún þekkir því húsið og starfsemina hér vel. Aníta býr yfir víðtækri reynslu af ráðstefnu- og viðburðahaldi og hefur sýnt í störfum sínum mikinn metnað fyrir framúrskarandi þjónustu og fagmennsku. Með komu hennar sjáum við spennandi tækifæri til að efla enn frekar viðburðahald í húsinu og nýta þá einstöku aðstöðu sem Borgarleikhúsið hefur upp á að bjóða,“ er haft eftir Kristínu Ögmundsdóttur, framkvæmdastjóri Borgarleikhússins.
Vistaskipti Leikhús Borgarleikhúsið Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira