Hugleiðingar um leikskólamál í borginni Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar 25. mars 2026 08:30 Miðflokkurinn stendur fyrir skynsemishyggju í stjórnmálum, að viðfangsefni séu leyst með raunsæjum og rökréttum hætti. Í því ljósi verður að viðurkenna að umfang áskorana í leikskólakerfinu í Reykjavík er það mikið að ekki er hægt að útiloka nokkrar leiðir við að bæta ástandið. Sú nálgun að útiloka ekki neinar lausnir krefst þess að skoða þarf bæði hefðbundin úrræði og nýjar leiðir utan þeirra. Aukin þátttaka sjálfstætt starfandi leikskóla Ástæða er til að hvetja til aukinnar þátttöku sjálfstætt starfandi leikskóla með því að styðja fyrirtæki og aðra aðila sem hafa áhuga á að opna leikskóla. Sú hugmynd hefur þó mætt tortryggni. Ef einkaaðilar geta boðið upp á faglegt og vandað starf samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla er eðlilegt að slíkir aðilar fái að reka leikskóla. En það á ekki að gerast án skýrra skilyrða: fagmennska, gæði og ábyrgð þurfa að vera til staðar. Blönduð leið- þar sem opinber rekstur og sjálfstætt starfandi leikskólar starfa hlið við hlið, ef hún byggir á skýru regluverki, virku eftirliti og ábyrgri meðferð á almannafé. Mönnunarvandinn Raunverulegi vandi leikskólakerfisinsinn virðist aðallega liggja í mönnun. Það að fjölga leikskólum leysir lítið ef ekki tekst að manna þá með hæfu starfsfólki. Álag í leikskólum er mikið og áhyggjuefni hversu margir starfsmenn hverfa tímabundið frá störfum vegna veikinda sem rekja má til álags. Það bendir til kerfislægs vanda sem ekki verður leystur með skammtímalausnum. Því þarf að leggja áherslu á að fjölga leikskólakennurum og bæta starfsumhverfi í þeim leikskólum sem fyrir eru og opna hug fyrir fleiri sem hafa áhuga á að opna sjálfstætt starfandi leikskóla. Lokaorð Leikskólar eru ekki geymsla fyrir börn til að mæta þörfum atvinnulífsins. Þeir eru fyrsta skólastigið, þar sem fer fram mikilvægt uppeldis- og menntunarstarf. Sú staðreynd þarf að njóta meiri virðingar í umræðunni. Höfundur eru frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Miðflokkurinn stendur fyrir skynsemishyggju í stjórnmálum, að viðfangsefni séu leyst með raunsæjum og rökréttum hætti. Í því ljósi verður að viðurkenna að umfang áskorana í leikskólakerfinu í Reykjavík er það mikið að ekki er hægt að útiloka nokkrar leiðir við að bæta ástandið. Sú nálgun að útiloka ekki neinar lausnir krefst þess að skoða þarf bæði hefðbundin úrræði og nýjar leiðir utan þeirra. Aukin þátttaka sjálfstætt starfandi leikskóla Ástæða er til að hvetja til aukinnar þátttöku sjálfstætt starfandi leikskóla með því að styðja fyrirtæki og aðra aðila sem hafa áhuga á að opna leikskóla. Sú hugmynd hefur þó mætt tortryggni. Ef einkaaðilar geta boðið upp á faglegt og vandað starf samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla er eðlilegt að slíkir aðilar fái að reka leikskóla. En það á ekki að gerast án skýrra skilyrða: fagmennska, gæði og ábyrgð þurfa að vera til staðar. Blönduð leið- þar sem opinber rekstur og sjálfstætt starfandi leikskólar starfa hlið við hlið, ef hún byggir á skýru regluverki, virku eftirliti og ábyrgri meðferð á almannafé. Mönnunarvandinn Raunverulegi vandi leikskólakerfisinsinn virðist aðallega liggja í mönnun. Það að fjölga leikskólum leysir lítið ef ekki tekst að manna þá með hæfu starfsfólki. Álag í leikskólum er mikið og áhyggjuefni hversu margir starfsmenn hverfa tímabundið frá störfum vegna veikinda sem rekja má til álags. Það bendir til kerfislægs vanda sem ekki verður leystur með skammtímalausnum. Því þarf að leggja áherslu á að fjölga leikskólakennurum og bæta starfsumhverfi í þeim leikskólum sem fyrir eru og opna hug fyrir fleiri sem hafa áhuga á að opna sjálfstætt starfandi leikskóla. Lokaorð Leikskólar eru ekki geymsla fyrir börn til að mæta þörfum atvinnulífsins. Þeir eru fyrsta skólastigið, þar sem fer fram mikilvægt uppeldis- og menntunarstarf. Sú staðreynd þarf að njóta meiri virðingar í umræðunni. Höfundur eru frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar