Pochettino segist sakna enska boltans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2026 19:01 Mauricio Pochettino sést hér á tíma sínum sem knattspyrnustjóri Chelsea en hann er nú landsliðsþjálfari Bandaríkjanna. Getty/Ryan Pierse Mauricio Pochettino, fyrrverandi knattspyrnustjóri Tottenham og Chelsea, segist sakna „fótboltaheimsins á Englandi“.
Pochettino er að undirbúa sig fyrir að stýra Bandaríkjunum, einu af gestgjöfum heimsmeistaramótsins í sumar, eftir að hafa verið ráðinn þjálfari liðsins í september 2024. Argentínumaðurinn hefur þrisvar sinnum starfað í ensku úrvalsdeildinni en síðast hætti hann hjá Chelsea með gagnkvæmu samkomulagi eftir eitt tímabil í maí 2024. Hann var í fimm ár hjá Tottenham og kom liðinu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar áður en hann var rekinn árið 2019. Hann hafði komið til Tottenham frá Southampton. „Ég elska landið, menninguna og fótboltamenninguna,“ sagði Pochettino í viðtali við franska tímaritið L'Equipe. „Fyrir alla með keppnisskap sem vilja mæla sig við aðra og reyna á hæfileika sína, þá er þetta kjörinn staður. Maður verður stöðugt að gera sitt besta,“ sagði Pochettino. Pochettino útilokaði sjálfan sig sem mögulegan arftaka Ange Postecoglou hjá Tottenham síðasta sumar og sagði að endurkoma til fyrrverandi félags síns á þeim tímapunkti væri „ekki raunhæf“. Hann staðfesti við L'Equipe að Spurs hefði áður haft samband við hann vegna endurkomu eftir fyrstu sex mánuðina hans í París árið 2021, ásamt „öðrum mjög stórum félögum“. Pochettino sagði við breska ríkisútvarpið á síðasta ári að hann væri „mjög ánægður í Ameríku en hugsaði líka um að snúa einn daginn aftur í ensku úrvalsdeildina“. Fyrrverandi félag hans, Spurs, er eitt þeirra liða sem nú leita að næsta fastráðna stjóra, á meðan það berst fyrir því að forðast fall í síðustu sjö leikjum tímabilsins.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti Bo Johansson er látinn Fótbolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Fótbolti Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Enski boltinn „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Fleiri fréttir Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Sjá meira