Af og frá að viðræður séu hafnar Birgir Olgeirsson skrifar 24. mars 2026 13:04 Búast má við að yfirlýsing Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Facebook í dag sé beint að frétt Morgunblaðsins frá því í morgun og að einhverju leyti Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrverandi forseta Íslands, sem hefur haldið því fram að viðræður við Evrópusambandið séu hafnar áður en þjóðin greiðir atkvæði um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið í lok ágúst. Vísir/Lýður Valberg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir af og frá að viðræðurnar við Evrópusambandið séu hafnar. Hún telur rétt að koma þessu skýrt á framfæri við þjóð sína í ljósi umræðu undanfarna daga.
Þó Þorgerður nefni það ekki beint er tilurð skrifa hennar vafalaust frétt Morgunblaðsins frá því í morgun og skrif Ólafs Ragnars Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, á samfélagsmiðlinum X undanfarna viku. Þorgerður skrifar á Facebook að verið sé að afvegaleiða umræðuna með þessum skrifum. Ólafur sagði á samfélagsmiðlinum X að samningaviðræður Íslands við Evrópusambandið væru þegar hafnar, og það áður en þjóðin greiðir atkvæði um áframhaldandi viðræður 29. ágúst næstkomandi. Clearly negotiations with #EU HAVE ALREADY STARTED; ignoring the referendum at the end of August! Not enough ‘to trust the nation “ to quote the favorite phrase. One must also RESPECT the nation, the will of the people.P.s What are “Iceland’s specific realities” they discussed? https://t.co/1HyonjQQRQ— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) March 18, 2026 Sú túlkun hans kom meðal annars í kjölfar færslu Mörtu Kos, stækkunarstjóra Evrópusambandsins, eftir fund hennar með Þorgerði í Brussel, þar sem Marta sagði að ef Íslendingar kysu að halda áfram viðræðum væri ESB staðráðið í að flýta samningaviðræðum um forgangsmál Íslands. Hún sagði jafnframt að þær hefðu rætt „sérstakar aðstæður Íslands“. Í frétt Morgunblaðsins frá því í morgun var síðan haft eftir viðmælendum að Þorgerður teldi líklegra að Evrópusambandið tæki upp íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið en að Ísland lagaði sig að sameiginlegri sjávarútvegsstefnu sambandsins. Þetta á Þorgerður að hafa sagt á fundi með forvígismönnum íslenskra millilandaviðskiptaráða á fundi í utanríkisráðuneytinu í síðustu viku. Þá var jafnframt haft eftir viðmælanda að Þorgerður hefði sagt að embætti fiskveiðikommissara gæti komið í hlut Íslendings ef til aðildar kæmi.Ólafur Ragnar skrifaði um þessa frétt Morgunblaðsins á X í morgun þar sem hann sagði að samkvæmt fréttinni væri Þorgerður virkilega stolt af árangri sínum í viðræðum við Evrópusambandið. According to @morgunbladid the FM @thorgkatrin is very proud of her success in the negotiations with the #EU. pic.twitter.com/uAL8SeRhpR— Ólafur Ragnar Grímsson (@ORGrimsson) March 24, 2026 Þorgerður vísar ekki beint í frétt Morgunblaðsins eða skrif Ólafs Ragnars en segir að ákveðin hagsmunaöfl hér á landi vinni leynt og ljóst að því að ala á ótta og tortryggni í garð þjóðaratkvæðagreiðslunnar og Evrópusambandsins. Hún segir andstæðinga EES-samningsins hafa beitt sömu aðferðum á sínum tíma en sagan sýni að samningurinn sé sá allra mikilvægasti viðskiptasamningur sem Íslendingar hafi gert. „Þetta mál er mun stærra en svo að nokkrir útvaldir hagsmunaaðilar fái að ákveða og hafa áhrif á hvað okkur er fyrir bestu. Sömu aðilar og stóðu að baki stjórnarandstöðuflokkunum í lengsta málþófi sögunnar síðasta sumar, í máli sem snerist um að þjóðin fengi réttláta hlutdeild í hennar eigin fiskveiðiauðlind. Þjóðin sá það sem betur fer í gegnum sérhagsmunagæsluna þá. Og ég veit að hún gerir það aftur núna.“ Þorgerður segir að ríkisstjórnin sé að taka eitt skref í einu í þessu máli, meta stöðuna og vanda sig fyrir Ísland. „Það er enginn kominn lengra og það fer enginn lengra nema þjóðin segi já. Sama hvað sagt er og reynt er að fullyrða þá er það ferlið sem við erum að vinna eftir. Einfaldara verður það ekki.“ Undanfarið hefur komið ákall frá stjórnarandstöðuflokkum um að Þorgerður Katrín og ríkisstjórnin geri grein fyrir hvað hafi farið á milli þeirra og fulltrúa Evrópusambandsins í aðdraganda þess að þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður var lögð fram. Þorgerður mun mæta til fundar við utanríkismálanefnd Alþingis í fyrramálið þar sem búast má fastlega við að fulltrúar minnihlutans í utanríkismálanefnd muni óska svara frá ráðherra um það.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira