Nýju fötin keisarans og „óráð“ forsetans Ágúst Kvaran skrifar 22. mars 2026 09:01 Grein bandaríska sagnfræðingsins og blaðamannsins Anne Applebaum, „Allir nema Trump skilja hvað hann hefur gert“ sem er að finna undir „Umræðan“ á Vísi.is (1) er lestrar virði. Meðal þess sem þar er bent á er að „undanfarna fjórtán mánuði hafa fáir erlendir leiðtogar getað viðurkennt að einstaklingur án nokkurrar stefnu geti í raun gegnt embætti forseta Bandaríkjanna. „Hann hlýtur að hugsa lengra en líðandi stund,“ hafa sérfræðingar í alþjóðastjórnmálum hugsað með sér. „Það getur ekki annað verið en að hann sé að fylgja einhverri hugmyndafræði, ákveðnu mynstri eða áætlun,“ hvísla erlendir stjórnmálamenn sín á milli.“ Þess ber að geta að Trump er, eins og kunnugt er, undir áhrifum fjölmargra valdaauðmanna („oligarka“) og stjórnmálamanna, sem leynt eða ljóst dufla við andlýðræðisstefnu, og yfirburðahyggju og sjá kerfi ríkisins og alþjóðlegra samtaka sem hindrun sem ryðja þurfi úr vegi. (Sjá t. d. (2)) Í ljósi þessa, þá flaug mér í hug viss samsvörun við „Nýju fötin keisarans“ eftir H.C. Andersen: Nýju fötin keisarans Sem kunnugt er fjalla „Nýju fötin keisarans“ um eiginjarna og vitgranna keisarann sem lét blekkjast af svikóttum klæðskerum til þess að búa til fyrir sig „dýrindis“ fatnað sem, að þeirra sögn, var þeirrar náttúru gædd að heimskum eða svikulum virtist hann ósýnilegur. Svikahrapparnir útbjuggu og klæddu keisarann í „engin föt“ með viðeigandi leiktilþrifum. Enginn sem sá (þar með talinn keisarinn sjálfur) þorði að lýsa því yfir að keisarinn væri ekki í neinum fötum af ótta við að koma upp um heimsku sína eða sviksemi, þar til loks að saklaust barn hrópaði í einlægni sinni, „en keisarinn er í engum fötum“. Þá brast flóðbylgja yfirlýsinga af sama toga! Síðan er langt um liðið og í dag er öldin önnur. Núna gæti sagan verið svona: „Óráð“ forsetans Eigingjarn forseti, sem vart stígur í vitið, lét blekkjast af svikahröppum sem aðhylltust ólýðræðisleg vinnubrögð og takmarkalaust frelsi án eftirlits til að geta farið sýnu fram að vild. Svikahrapparnir töldu forsetann á alls kyns ráð og athafnir sem samræmdust hugsjónum þeirra. Allir (þar með talið forsetinn) álitu að hér væri um sanngjörn, þaulhugsuð og heillavænleg ráð að ræða, enda ótrúlegt að einstaklingur án nokkurrar slíkrar stefnu gæti í raun gegnt valdamiklu embætti forseta. Þannig gekk um hríð þar til að raddir fóru að heyrast þess efnis að forsetinn sjálfur væri í reynd með enga sjálfstæða stefnu, heldur væri hugmyndasnautt rekald í höndum svikahrappa…….. Höfundur er prófessor emeritus í eðlisefnafræði við HÍ, áhugamaður um alþjóðamál o.fl. Heimildir (1) https://www.visir.is/g/20262858585d/allir-nema-trump-skilja-hvad-hann-hefur-gert? (2) https://www.visir.is/g/20262832671d/krunuleikar-trumps-konungs Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Donald Trump Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar