„Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 22:38 Bruno Fernandes ræðir við Stuart Attwell dómara í leiknum í kvöld. Getty/ Rob Newell Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United, var mjög vonsvikinn eftir 2-2 jafntefli á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
United komst tvisvar yfir í leiknum en missti leikinn niður í jafntefli og spilaði síðan lokakaflann manni færri eftir að Harry Maguire fékk rautt spjald. United vildu fá vítaspyrnu í stöðunni 1-0 en í beinu framhaldi fór Bournemouth upp og jafnaði metin. Við gerðum nóg „Ég er vonsvikinn því við gerðum nóg til að fá þrjú stig. Við þurftum að enda leikinn á því að þjást mikið og reyna að fá ekki á okkur mark. Við erum svekktir út í sjálfa okkur því við hefðum getað komist í 2-0 og í staðinn fengum við á okkur mark,“ sagði Bruno Fernandes. „Við fáum ekki vítaspyrnu og svo er dæmd vítaspyrna á okkur þar sem staðan er sú sama og hjá Amad – annað er víti, hitt ekki. Ég veit að það er erfitt fyrir dómarann að dæma tvær vítaspyrnur á sama liðið í einum leik en ég skil ekki af hverju VAR grípur ekki inn í það atvik eða með Harry [Maguire] því annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt,“ sagði Bruno. Eitthvað raskar jafnvægi hans algjörlega „Amad er að komast í skotstöðu og honum er ýtt – það sést að eitthvað raskar jafnvægi hans algjörlega. Þetta er svekkjandi fyrir smærri leikmennina því það er alltaf sagt að smærri leikmenn séu veiklulegir og þegar um stærri leikmenn er að ræða er brotið dæmt. Mér finnst hitt atvikið vera vítaspyrna en mér finnst atvikið með Amad líka vera vítaspyrna og það hefði getað breytt leiknum,“ sagði Bruno. „Undanfarnar vikur höfum við verið að ná jákvæðum úrslitum og það gefur liðinu jákvæða orku til að skilja að við getum farið hvert sem er og náð í úrslit. Við höfum verið á mjög góðu skriði undir stjórn Michael [Carrick] og í dag þurftum við að þjást og náðum í stig – við fengum eitthvað út úr því,“ sagði Bruno. Við verðum að komast lengra frá þeim „Það sem gæti verið betra er að við fáum þrjú stig í næsta leik sem við náðum ekki í dag. Enska úrvalsdeildin er mjög erfið og samkeppnin er mikil. Aston Villa er nálægt okkur og Liverpool og Chelsea líka. Markmið okkar er að sækja fram með því að halda áfram að safna stigum, við verðum að komast lengra frá þeim og besta leiðin til þess er að halda áfram að safna stigum. Ef þú vilt komast nær þeim sem eru fyrir ofan þig þarftu samt að ná í þrjú stig,“ sagði Bruno.
Enski boltinn Manchester United AFC Bournemouth Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira