Viðskipti erlent

Boðar fín­stillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum

Kjartan Kjartansson skrifar
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, þegar hún ræddi við blaðamenn eftir fund leiðtogaráðs sambandsins í gær.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, þegar hún ræddi við blaðamenn eftir fund leiðtogaráðs sambandsins í gær. Vísir/EPA

Tillaga að breytingum á viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS) verður lögð fram á næstu dögum, að sögn forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Breytingunum er ætlað að bregðast við háu raforkuverði í Evrópu.

Einn möguleikinn sem er í skoðun er að fjölga endurgjaldslausum losunarheimildum sem fyrirtæki fá í ETS-kerfinu. Kerfið byggist á því að fyrirtæki þurfi að kaupa losunarheimildir fyrir hvert tonn af koltvísýringi sem það losar og stuðlar að loftlagsbreytingum á jörðinni.

Ýmis Evrópuríki hafa gagnrýnt kostnað fyrirtækja vegna ETS-kerfisins að undanförnu, sérstaklega áhrif þess á raforkuverð. Ólíkt Íslandi heyra raforkuver í Evrópu víða undir ETS-kerfið þar sem rafmagn er framleitt með bruna á kolum eða gasi. Kaup orkufyrirtækja á losunarheimildum hafa þannig áhrif á raforkuverð til evrópsks almennings.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði eftir leiðtogafund í gær að brugðist yrði við hækkunum á raforkuverði með blöndu af skyndilausnum og kerfislægum breytingum til lengri tíma. Tillaga um þetta yrði lögð fram á næstu dögum.

Milljarðar í að hjálpa fyrirtækjum að draga úr losun

Endurskoðun á ETS-kerfinu stóð þegar fyrir dyrum síðar á þessu ári. Sum evrópsk iðnfyrirtæki hafa þrýst á sambandið að draga úr kröfum til þeirra um að þau greiði fyrir eigin losun.

ESB er einnig með í smíðum allt að þrjátíu milljarða evra, jafnvirði rúmra 4.300 milljarða íslenskra króna, afkolefnisvæðingasjóð sem yrði notaður til þess að styrkja fyrirtæki í að draga úr losun sinni. Hann yrði fjármagnaður með sölu á 400 milljónum losunarheimilda úr ETS-kerfinu, að sögn evrópska blaðsins Politico.

Von der Leyen sagði eftir fundinn með evrópskum leiðtogum í gær að hann hefði verið jákvæður fyrir framtíð ETS-kerfisins. Leiðtogarnir hefðu ekki gert kröfur um grundvallarbreytingar á því og margir þeirra lofað hlut þess í að hraða á orkuskiptum í álfunni.

Tilgangur ETS-viðskiptakerfisins með losunarheimildir er að láta iðnfyrirtæki, flugfélög og skipafélög greiða fyrir losun gróðurhúsalofttegunda sem þau valda og skapa hvata til þess að þau dragi úr losuninni.

Losun gróðurhúsalofttegunda er orsök loftslagsbreytinga og hnattrænnar hlýnunar sem ógnar stöðugleika samfélaga manna og vistkerfa jarðar.

ETS-kerfið er hannað til þess að gera það smám saman dýrara fyrir fyrirtæki að losa gróðurhúsalofttegundir. Fyrirtæki sem heyra undir kerfið fá ókeypis heimildir fyrir hluta losunar sinnar en þeim hefur verið fækkað í áföngum. Á þessu ári fá flugfélög í fyrsta skipti engar fríar heimildir, fyrir utan flugrekendur á Íslandi samkvæmt sérlausn sem íslensk stjórnvöld fengu.

Frá því að ETS-kerfið var tekið upp árið 2005 hefur losun frá iðnaði sem fellur undir það dregist saman um helming. Önnur losun innan Evrópu hefur dregist saman um fimmtung á sama tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×