Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Samúel Karl Ólason skrifar 19. mars 2026 13:52 Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir ráðuneytið þurfa mikinn pening til að fylla aftur á „vopnabúr frelsisins“. AP/Manuel Balce Ceneta Forsvarsmenn varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna eru sagðir hafa farið fram á við Hvíta húsið að fá tvö hundruð milljarða dala í aukafjárveitingu vegna stríðsins gegn Íran. Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, segir þá tölu geta breyst en það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“.
Tvö hundruð milljarðar dala samsvarar rúmum 25 billjónum króna (tólf núll). Landsframleiðsla Íslands árið 2025 var tæpar fimm billjónir króna. Washington Post hafði eftir heimildarmanni í gær að ráðuneytið hefði farið fram á meira en tvö hundruð milljarða í aukafjárveitingu vegna stríðsins. Mjög umfangsmikill herafli tekur þátt í árásunum gegn Íran. Tvö flugmóðurskip eru á svæðinu, með fylgiskipum, og hundruð herþota og flugvéla hafa einnig verið notaðar til að varpa þúsundum sprengja og eldflauga á skotmörk í Íran. Innan veggja Hvíta hússins eru litlar líkur taldar á því að þingið muni fást til að samþykkja þessa upphæð. Nauðsynlegt að fylla aftur á hillurnar Hegseth var spurður út í þessar fregnir Washington Post á blaðamannafundi í varnarmálaráðuneytinu í dag. Þá sagði hann að 200 milljarðar dala þyrftu ekki að vera lokatalan en tók fram að það þurfi „peninga til að drepa vonda kalla“. Þingið þyrfti að sjá um að varnarmálaráðuneytið fengi nægilega aukafjárveitingu vegna þess sem þegar væri búið að gera í Íran og vegna þess sem mögulega þyrfti að gera í framtíðinni. Það þyrfti að fylla aftur í tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna og rúmlega það. Ráðherrann hélt því fram að Trump hefði endurbyggt bandaríska herinn á sínu fyrsta kjörtímabili og það sem betur fer, vegna þeirra átaka sem standa nú yfir. Nú væri verið að blása nýju lífi í hergagnaiðnað Bandaríkjanna og sagði Hegseth að það myndi taka styttri tíma en marga grunaði að endurfylla „vopnabúr frelsisins“, eins og hann kallaði það. Þá gagnrýndi hann Joe Biden, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, fyrir að senda hergögn og skotfæri til Úkraínu. Hegseth sagði að enn væri verið að takast á við þær ákvarðanir og að betra væri að nota þessi skotfæri í þágu Bandaríkjanna. Hegseth: As far as the $200 billion. I think that number could move. Obviously, it takes it takes money to kill bad guys. pic.twitter.com/uN3L6vw08k— Acyn (@Acyn) March 19, 2026 Frá því Trump tók aftur við embætti hefur hann ekki samþykkt nýjar hergagnasendingar til Úkraínu. Hann hefur þó selt ríkjum Evrópu hergögn sem hafa verið send til Úkraínu og þá sérstaklega flugskeyti fyrir loftvarnarkerfi. Hegseth nýtti blaðamannafundinn í morgun einnig til þess að skammast út í „vanþakkláta“ bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu, fjölmiðla og heiminn allan fyrir að þakka forsetanum ekki fyrir það sem hann væri að gera. Hegseth: "Our ungrateful allies in Europe, even segments of our own press, should be saying one thing to President Trump -- 'Thank you. Thank you for the courage to stop this terror stage from holding the world hostage while building or attempting to build a nuclear bomb.'" pic.twitter.com/EpuPOUDd6I— Aaron Rupar (@atrupar) March 19, 2026
Bandaríkin Hernaður Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. 19. mars 2026 09:48 Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað umfangsmiklum árásum á Suður Pars-gasvinnslusvæðið ef Íranir gera frekari árásir á gasinnviði í Katar. 19. mars 2026 06:51 Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Ísraelar segjast hafa fellt enn einn ráðherrann í Íran. Að þessu sinni er um að ræða Esmaeil Khatib, ráðherra leyniþjónustumála í Íran, en fyrr í vikunni felldu þeir Ali Larijani, forseta þjóðaröryggisráðs Íran, sem var talinn vera raunverulegur stjórnandi landsins eftir að æðstiklerkurinn Ali Khamenei var ráðinn af dögum fyrir rúmum tveimur vikum. 18. mars 2026 11:01 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira
Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær. 19. mars 2026 09:48
Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað umfangsmiklum árásum á Suður Pars-gasvinnslusvæðið ef Íranir gera frekari árásir á gasinnviði í Katar. 19. mars 2026 06:51
Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Ísraelar segjast hafa fellt enn einn ráðherrann í Íran. Að þessu sinni er um að ræða Esmaeil Khatib, ráðherra leyniþjónustumála í Íran, en fyrr í vikunni felldu þeir Ali Larijani, forseta þjóðaröryggisráðs Íran, sem var talinn vera raunverulegur stjórnandi landsins eftir að æðstiklerkurinn Ali Khamenei var ráðinn af dögum fyrir rúmum tveimur vikum. 18. mars 2026 11:01