Ósýnilegi reikningurinn í grunnskólum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 20. mars 2026 08:09 Grunnskólinn á og getur verið eitt mikilvægasta jöfnunartæki samfélagsins. Skólinn á að tryggja að öll börn hafi jafna stöðu, aðgang og möguleika, óháð efnahag foreldra/forráðamanna, bakgrunni eða búsetu. Það er bæði lagaleg og ekki síður siðferðisleg skylda skólanna og okkar að sjá um að svo verði. Raunveruleikinn stundum annar Í starfi stýrihóps sem mennta- og barnamálaráðherra skipaði og undirrituð fer fyrir, til að móta stefnu og aðgerðir til að takast á við fátækt barna, höfum við rekist á dæmi um verulega mismunun varðandi kostnað sem fellur á fjölskyldur vegna þátttöku barna í skólasamfélaginu. Kostnaður sem tengist ekki beint kjarna námsins, heldur félagslegri þátttöku, sem er órjúfanlegur hluti af skólagöngu barna. Dæmin eru skýr Í sumum skólum eru skólaferðir að fullu greiddar af skólanum, meðal annars vegna tilmæla fræðslustjóra. Í þeim skólum hefur þátttaka aukist og allir nemendur geta verið með. Í öðrum skólum eru dæmi um tuga þúsunda kostnað foreldra, sem greiða tæp fimmtíu þúsund krónur fyrir skólabúðir, auk kostnaðar vegna árshátíða, skóladansleikja, bekkjarkvölda og jafnvel til kaupa á sér merktum skólapeysum. Við sjáum líka að börn eru sum staðar hvött til að standa í fjáröflunum, með sölu á kökum eða með vinnu við viðburði til að geta tekið þátt í eigin skólagöngu. Þótt slík þátttaka geti verið jákvæð og lærdómsrík má hún aldrei verða forsenda þess að barn fái að taka þátt í félagsstarfi innan skólans. Í sumum sveitarfélögum og skólum er boðið upp á úrræði fyrir einstaka nemendur, til dæmis með stuðningi frá mikilvægum sjóðum eins og Hróa Hetti. Flestir skólastjórnendur og kennarar eru meðvitaðir um þessa mismunun og fara ýmsar leiðir til að tryggja að börn frá tekjuminni heimilum geti tekið þátt í skólasamfélaginu. En það leysir ekki kerfisbundinn vanda. Spurningin sem við verðum að svara er einföld: Hvernig stendur á því að við höfum leyft þessari mismunun að þrífast? Grunnskólinn vettvangur jafnaðar Hvers vegna er það háð búsetu eða skóla hvort barn getur tekið þátt í skólaferð, árshátíð eða öðru félagsstarfi skólans án fjárhagslegs álags á fjölskylduna? Þetta er ekki smávægilegt atriði. Þátttaka í skólasamfélagi er lykilþáttur í félagsfærni, sjálfsmynd og tengslamyndun barna. Í grunnskólanum verða til minningar sem fylgja börnunum alla ævi og þær minningar geta verið neikvæðar ef reynsla barna er að hafa staðið utan veltu. Ef við tökum jöfnuð í menntakerfinu alvarlega verðum við að horfast í augu við þetta misræmi og bregðast við því. Það þarf skýrari stefnu, eftirfylgni og samræmi í framkvæmd og ábyrgð á því að kostnaður sem tengist nauðsynlegri þátttöku í skólasamfélaginu falli ekki á foreldra. Grunnskólinn á að vera vettvangur jafnaðar, ekki vettvangur mismununar. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Grunnskólar Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar