Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 19:49 Arna Karitas Eiríksdóttir tryggði Valskonum sigurinn fyrir norðan í kvöld. Vísir/Anton Valskonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn um síðustu helgi og fylgdu því eftir með sigri á Akureyri í kvöld.
Valur vann 31-30 sigur á KA/Þór fyrir norðan þar sem Arna Karitas Eiríksdóttir skoraði sigurmarkið í æsispennandi leik. Auður Ester Gestsdóttir skoraði átta mörk fyrir deildarmeistara Vals, Lovísa Thompson skoraði sex mörk og gaf sjö stoðsendingar og þær Arna Karitas og Elísa Elíasdóttir voru báðar með fimm mörk. Susanne Denise Pettersen skoraði sjö mörk fyrir heimakonurnar í Þór/KA og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir var með sex mörk. Rakel Oddný Guðmundsdóttir skoraði átta mörk fyrir Hauka í 30-22 útisigri á Selfossi. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var með sex mörk og Inga Dís Jóhannsdóttir skoraði fimm. Hulda Dís Þrastardóttir var markahæst hjá Selfossi með sex mörk. Birna Dís Sigurðardóttir skoraði átta mörk þegar Eyjakonur unnu flottan átta marka sigur á ÍR í Eyjum, 33-25. Sandra Erlingsdóttir var með sex mörk og fimm stoðsendingar og þær Ásdís Halla Hjarðar, Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Ásta Björt Júlíusdóttir skoruðu öll þrjú mörk. Sara Dögg Hjaltadóttir, markahæsti leikmaður deildarinnar, skoraði þrettán mörk fyrir ÍR en það dugði ekki til. Dagbjört Ýr Ólafsdóttir kom henni næst með fjögur mörk. Valskonur eru efstar með fjögurra stiga forskot á ÍBV þegar aðeins ein umferð er eftir. Haukar eru öruggar með þriðja sætið eftir úrslit kvöldsins þar sem liðið náði þriggja stiga forystu á ÍR. Stjarnan náði Selfoss að stigum með því að gera jafntefli við Fram. Fallbaráttan ræðst því í lokaumferðinni.
Olís-deild kvenna Valur KA Þór Akureyri UMF Selfoss ÍBV Haukar Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira