Rót stjórnlausa bruðlsins hjá ríki og borg Guðröður Atli Jónsson skrifar 18. mars 2026 10:33 Í gær birti ég grein á Vísi þar sem ég rakti hvernig Reykjavíkurborg dælir almannafé til erlendra tæknirisa í gegnum stjórnlaust bruðl í upplýsingatækni. Þessi stafræna ánauð takmarkast því miður ekki við borgina, heldur er hún hluti af mun stærra, kerfislægu vandamáli. Í nýrri hraðúttekt Ríkisendurskoðunar um innkaup ríkisaðila á upplýsingatækni er niðurstaðan nákvæmlega sami áfellisdómur yfir áratuga stefnuleysi. Árleg útgjöld ríkisins í þennan málaflokk eru metin á bilinu 12 til 15 milljarðar króna. Samkvæmt skýrslu KPMG, sem Samband íslenskra sveitarfélaga lét vinna, eru heildarútgjöld opinbera geirans í upplýsingatækni að minnsta kosti 42,6 milljarðar króna á ári, en sú tala er beinlínis kölluð varfærin áætlun vegna þess að enginn samræmdur bókhaldsstaðall er til. Þar ráða þrír birgjar nánast lögum og lofum og eitt einkafyrirtæki, Advania, heldur utan um 60% af öllum sérsmíðuðum hugbúnaði ríkisstofnana. Hvort sem litið er til ríkis eða borgar er staðan sú sama: engin samhæfing, engin yfirsýn og engin ábyrgð. Ríkisendurskoðun orðar ástandið hjá ríkinu skýrt: „Stefna, stjórnun og rekstur upplýsingatæknimála ríkisaðila hefur verið dreifstýrð og ábyrgð legið hjá einstökum stofnunum. Samhæfing hefur þar verið lítil sem engin.“ Þetta er ekki tilviljun. Þetta er bein afleiðing af pólitískri hugmyndafræði sem hefur ráðið ríkjum á Íslandi í þrjá áratugi. Nýskipan í ríkisrekstri Árið 1993 gaf fjármálaráðuneytið út skýrslu með heitinu „Umbætur og nýskipan í ríkisrekstri“ undir forystu Friðriks Sophussonar, fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. Hugmyndafræðin var einföld og fengin beint úr Thatcher-stefnunni og nýfrjálshyggjunni: Ríkið ætti að draga úr umsvifum sínum, dreifa ábyrgð til einstakra stofnana og selja opinber fyrirtæki til einkaaðila. Markaðurinn átti að leysa vandamálin, samkeppnin átti að tryggja hagkvæmni og opinber starfsemi átti að líkjast einkageiranum eins mikið og hægt væri. Þetta var kenningin. Afleiðingarnar urðu allt aðrar. Skýrsluvélar ríkisins seldar á undirverði Eitt af fyrirtækjunum sem Friðrik Sophusson einkavætti var Skýrr, sem áður hét Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurbæjar. Fyrirtækið var stofnað árið 1952 sem sameiginleg tölvuþjónusta ríkis og borgar. Þetta var miðstýrð opinber þjónusta sem sinnti gagnaskráningu, skattamálum og upplýsingakerfum fyrir allan opinbera geirann. Öll yfirstjórnin var á einum stað og ábyrgðin skýr. Árið 1996 var rekstrarformi Skýrr breytt í hlutafélag og árið 1997 seldi ríkið 56% af fyrirtækinu fyrir 162 milljónir króna (577 milljónir á verðlagi 2025), sem var aðeins helmingur af raunvirði samkvæmt útboðsmati Kaupþings. Árið 1999 var síðasti hlutinn, 44%, seldur fyrir 282 milljónir (970 milljónir á verðlagi 2025). Verðið var hlægilegt. Í einkavæðingargögnum segir orðrétt: „Hvorki þekking né stórviðskipti við ríkið metin sem skyldi, né yfirburðastærð á markaði eða framtíðarmöguleikar hugbúnaðargeirans. Tíföldun á virði á stuttum tíma.“ Samtals seldi ríkið Skýrr fyrir 444 milljónir króna (tæplega 1,5 milljarða á verðlagi 2025). Ríkið seldi almannaeignina á gjafaverði og gaf hundruð milljóna af verðmæti hennar til einkaaðila. Og hvert fór Skýrr? Árið 2012 rann fyrirtækið inn í Advania, sem nú er alþjóðlegt tæknifyrirtæki. Þetta er sama Advania og hefur í dag 60% af öllum sérsmíðuðum hugbúnaði ríkisstofnana. Opinbera tölvuþjónustan var seld á undirverði, henni var breytt í einkafyrirtæki og hún hefur nú einokun á þeirri þjónustu sem ríkið veitti sér áður sjálft. Sömu leið og veiturnar Þetta er nákvæmlega sama hugmyndafræðin og liggur að baki niðurbroti opinberrar þjónustu á öllum sviðum. Líkt og veitur, lagnir og rafkerfi eru tölvuinnviðir í eðli sínu sameiginlegur grunnur sem þjónar öllum samfélagsþegnum. Það er engin raunveruleg samkeppni í neðanjarðar lagnakerfum og það er heldur engin raunveruleg samkeppni í miðlægum upplýsingakerfum ríkisstofnana. Þegar 160 ríkisstofnanir reka hver sitt upplýsingakerfi og semja hver fyrir sig við sömu fáu fyrirtækin er útkoman einungis þessi: hátt verð, engin yfirsýn og algjör birgjalæsing (e. vendor lock-in). Ríkisendurskoðun staðfestir þetta. Hjá þeim 28 stofnunum sem voru kannaðar reyndust vera 280 upplýsingakerfi í notkun, þar af 128 sérsmíðuð. Skatturinn einn var með 18 slík kerfi. Enginn heildstæður gagnagrunnur var til um þessi kerfi, enginn kostnaðarsamanburður og engin greining fór fram á því hvort kerfi stofnana sköruðust eða gætu nýst margvíslega. Hjá sveitarfélögunum 64 er staðan enn dekkri. Hvert og eitt þeirra rekur sín eigin tölvukerfi, kaupir sín eigin hugbúnaðarleyfi og semur sjálfstætt við sömu fáu birgjana sem ráða markaðnum. Þegar reynt var að gera sameiginlegan Microsoft-samning fyrir sveitarfélögin árin 2022 til 2023 var Microsoft einfaldlega ekki tilbúið til að semja vegna þess að umfangið þótti of lítið. Tæknirisinn vísaði heilum sveitarstjórnarstigum á dyr. Miðstýring er nauðsynleg Þegar Skýrsluvélar ríkisins voru stofnaðar árið 1952 var grundvallarskilningurinn skýr. Tölvumál eru innviðir, rétt eins og hafnir, vegir og vatnsveitur. Þau eiga að vera á sameiginlegum grunni í almannaeigu, en ekki í höndum einkaaðila sem hagnast á sundrung og vanþekkingu kaupenda. Hugmyndafræðin á bak við Nýskipan í ríkisrekstri sneri þessu hins vegar á haus. Ríkisstofnanir fengu „sjálfstæði“ til að velja sína eigin birgja, sem þýddi í raun ekkert annað en að þær misstu alla sína samningsstöðu. Fyrirtæki á borð við Advania, Origo og Prógramm urðu svo öflug í skjóli þessara dreifstýrðu opinberu innkaupa að samkeppnin varð merkingarlaus. Ríkisendurskoðun bendir á að Microsoft-samningur ríkisins frá 2018 hafi átt að spara 5,5 milljarða á ári. Raunin varð hins vegar sú að útgjöld A-hluta stofnana hækkuðu um 159% á aðeins fjórum árum. Hjá menntastofnunum nánast tífaldaðist kostnaðurinn. Engar hlutlægar mælingar á sparnaði voru gerðar og enginn getur sýnt fram á neinn árangur af samningnum. Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Friðrik Sophusson dreymdi um hagkvæmt ríki á forsendum markaðarins. Niðurstaðan varð hins vegar einkamarkaður sem arðrænir ríkisvaldið. Opinber tölvuþjónusta, sem ríkið átti áður sjálft, er nú í höndum einkaaðila sem rukka margfalt meira fyrir hana. Stofnanir sem áttu að njóta góðs af þessu „sjálfstæði“ eru nú fastar í fjötrum birgja og greiða hvað sem upp er sett. Á meðan þessu stendur dælir ríkið 12 til 15 milljörðum króna á ári í upplýsingatækniinnkaup, algjörlega án samhæfingar, án yfirsýnar og án nokkurrar ábyrgðar á því hvort almannafé sé yfirhöfuð að skila raunverulegum árangri. Rót óstjórnarinnar er ekki flókin. Henni var sáð af hugmyndafræði sem blint trúir á dreifstýringu og einkavæðingu innviða sem eiga heima í almannaeigu. Tölvuinnviðir eru innviðir, nákvæmlega eins og lagnir og veitur. Þar á miðstýring og lýðræðislegt eignarhald heima. Höfundur er flokksmaður í Sósíalistaflokknum. Heimildir: ● „Innkaup ríkisaðila á upplýsingatækni“, hraðúttekt Ríkisendurskoðunar, mars 2025, bls. 4-5, 17-19 (rikisendurskodun.is) ● „Samningur ríkisins við Microsoft“, stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, október 2023, bls. 35-39 (rikisendurskodun.is) ● KPMG-skýrsla um stafrænt samstarf sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga ● „Umbætur og nýskipan í ríkisrekstri“, fjármálaráðuneytið, 1993 ● Einkavæðingargögn ríkisfyrirtækja 1991-2007: Skýrr hf. selt 1997 (56%, 162 m.kr.) og 1999 (44%, 282 m.kr.), samantekt höfundar byggð á opinberum gögnum ● Friðrik Sophusson, æviágrip þingmanna, Alþingi (althingi.is) ● Stafrænt Ísland, stefnumótun og saga verkefnisins (island.is/s/stafraent-island) ●Verðlagsreiknivél Hagstofu Íslands, núvirðing upphæða 1997 og 1999 til 2025 (hagstofa.is/verdlagsreiknivel) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun