Danir kjósa um hag barna. Ættum við ekki að gera það líka? Elín Anna Baldursdóttir skrifar 18. mars 2026 08:02 Næsta laugardag kjósa Danir nýja ríkisstjórn. Eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni er staða folkeskolen, grunnskólans, og geðheilbrigði barna. Þegar forsætisráðherra Danmerkur boðaði til kosninga sagði hún meðal annars: „Það eru of mörg börn og ungmenni sem líður ekki vel.“ Hún benti jafnframt á að innleiðing skóla án aðgreiningar hefði víða mistekist og að skólakerfið stæði frammi fyrir vaxandi áskorunum. Skýrslur hafa varpað ljósi á alvarlega stöðu þegar kemur að líðan nemenda og starfsfólks og stjórnmálaflokkar keppast nú um lausnir. Skólamál eru orðin þjóðmál. Það er ekki sjálfgefið í þjóðþingskosningum en ég skil vel hvers vegna. Í Danmörku hefur verið bent á að skólar takist í vaxandi mæli á við flóknari áskoranir. Nemendahópurinn er fjölbreyttari, áhrif samfélagsmiðla meiri og einmanaleiki og vanlíðan algengari. Á sama tíma hefur sérfræðiþjónustan ekki verið styrkt í takt við aukna þörf og fleiri börn bíða eftir greiningu og meðferð. Sífellt fleiri foreldrar velja einkarekna skóla og spurt er hvort hinn almenni grunnskóli sé að verða undir. Þetta er ekki sérdönsk þróun. Við sjáum hana líka hér heima. Í starfi mínu sem sálfræðingur hitti ég börn sem bíða eftir aðstoð sem kemur of seint. Foreldra sem vita ekki hvert þeir eiga að leita. Kennara sem standa frammi fyrir sífellt flóknari verkefnum án þess að fá nægan stuðning. Þegar við bregðumst ekki snemma við vex vandinn. Barn sem hefði þurft stuðning í þriðja bekk þarf oft á mun umfangsmeiri aðstoð að halda í áttunda bekk. Kostnaðurinn verður meiri, ekki aðeins í krónum heldur einnig í þáttum sem verða ekki metnir til fjár. Ætti þetta ekki að vera eitt af stóru kosningamálunum á Íslandi? Grunnskólar eru á ábyrgð sveitarfélaga og þjónusta við börn og fjölskyldur er að stórum hluta skipulögð og fjármögnuð á sveitarstjórnarstigi. Sveitarfélög hafa því raunverulegt svigrúm til að hafa áhrif á líðan barna, námsframvindu og starfsumhverfi kennara. Sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí gefa kjósendum tækifæri til að velja þá stefnu sem þeir vilja sjá í þessum málaflokki. Við jafnaðarmenn í Hafnarfirði viljum byggja upp sterkari stoðir í kringum börn og skólastarf, efla snemmtækan stuðning og bæta aðgengi að ráðgjöf og þjónustu fyrir fjölskyldur og starfsfólk skóla. Slík áhersla eykur líkur á betri námsárangri, bættri líðan og sterkara samfélagi til lengri tíma. Höfundur er sálfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar