Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2026 16:16 Susie Wiles er náinn ráðgjafi Trumps og hefur þekkt forsetann og fjölskyldu hans um árabil. AP/Mark Schiefelbein Susie Wiles, starfsmannastjóri Donalds Trump í Hvíta húsinu, hefur greinst með krabbamein. Meinið fannst í brjósti hennar og tiltölulega snemma og stefnir hún ekki að taka sér frí frá störfum á meðan hún gengur gegnum meðferð.
Wiles er fyrsta konan sem gegnt hefur embætti starfsmannastjóra Hvíta hússins, frá því það var stofnað fyrir um áttatíu árum. Hún og Trump hafa þekkst um árabil og hafa lengi unnið saman. Hún er sögð hafa spilað stóra rullu í kosningabaráttu forsetans. New York Times hefur eftir Wiles, sem er 68 ára gömul, að meðferðin muni hefjast fljótt og að hún muni standa yfir í nokkrar vikur. Þá segir hún að krabbameinið hafi fundist í síðustu viku og að horfur hennar séu nokkuð góðar. Trump sagði frá greiningu hennar á Truth Social en þar sagði forsetinn að Wiles væri frábær starfsmannastjóri og mögnuð manneskja. Hún væri einhver sterkasta manneskja sem hann þekkti. Þá segir hann að batahorfur hennar séu góðar, vegna þess hve snemma krabbameinið greindist og að hún ætli að halda áfram að vinna í Hvíta húsinu, honum til mikillar ánægju. Sjá einnig: Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista „Styrkur hennar og ábyrgð við að halda áfram að sinna starfinu sem hún elskar, og vinnur svo vel, á meðan hún gengst meðferð, segir ykkur allt sem þið þurfið að vita um hana,“ skrifaði Trump. „Susie er ein af mínum nánustu og mikilvægu ráðgjöfum. Hún er hörð í horn að taka og staðföst í því að þjóna bandarísku þjóðinni.“ Trump segir að hún muni fljótt komast aftur í fyrra horf og að hann og Melania Trump muni standa við hlið hennar í þessu ferli.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira