Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Sindri Sverrisson skrifar 16. mars 2026 11:04 Almar Orri Atlason fær að taka þátt í einu vinsælasta íþróttamóti hvers árs í Bandaríkjunum; Marsfárinu í háskólakörfuboltanum. Getty/Frank Jansky Skólalið Almars Orra Atlasonar, Birgis Leifs Irving og Friðriks Leós Curtis hlutu bæði náð fyrir augum valnefndar og fá nú að taka þátt í sjálfu Marsfárinu (e. March Madness) í bandaríska háskólakörfuboltanum.
Aðeins 68 bestu háskólalið Bandaríkjanna eru með í Marsfárinu. Þar af fá 32 lið sjálfkrafa sæti með því að vinna sína svæðisdeild en svo eru 36 lið valin út frá ýmsum þáttum. Almar og félagar í Miami Ohio háskólanum voru vissulega líklegir til að verða fyrir valinu, í ljósi þess að þeir unnu alla leiki sína í deildarkeppninni, 31 talsins, og enduðu því efstir í Mið-Ameríku deildinni. Þeir féllu hins vegar úr leik í fyrstu umferð í úrslitakeppni deildarinnar og aðeins sigurliðið komst beint inn í Marsfárið. Þess vegna þurftu þeir að bíða og vona. Niðurstaða valnefndar var svo tilkynnt í gær og nú þurfa leikmenn Miami Ohio ekki lengur að treysta á neina aðra en sjálfa sig. Þeir þurfa hins vegar að byrja á að mæta SMU háskólanum á miðvikudaginn, í sérstöku umspili átta lægst skrifuðu skólanna. Sigur þar myndi tryggja Almari og félögum einvígi við Tennessee í 64-liða úrslitunum sem fram fara á fimmtudag og föstudag. ÍR-ingurinn Friðrik Leó Curtis er á leið í Marsfárið.ÍR Friðrik Leó Curtis og félagar í Nebraska Cornhuskers fara í Marsfárið eftir að hafa orðið í 2. sæti deildarkeppninnar í Big 10 deildinni, og fallið þar út í 8-liða úrslitum. Þeir fara beint í 64 liða úrslitin og mæta þar liði Troy frá Alabama. Tvítugur Garðbæingur, Birgir Leifur Irving, hefur einnig farið í marsfárið. Fór í fyrra og aftur í ár. Er í litlu hlutverki hjá liði High Point, en samt alltaf í hóp. High Point mætir Wisconsin í fyrstu umferðinni í ár. Þeir Almar Orri, Birgir Leifur og Friðrik Leó bætast nú í hóp þeirra Íslendinga sem fengið hafa að taka þátt í Marsfárinu sem er svo sannarlega afar vinsælt í Bandaríkjunum. Valsarinn Frank Aron Booker lék þar með Oklahoma-háskólanum fyrir rúmum áratug og svo Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson fyrir átta árum, með Davidson háskólanum. Helena Sverrisdóttir og Dagný Lísa Davíðsdóttir hafa einnig afrekað það kvennamegin, sem og Elísabeth Ýr Ægisdóttir sem fór með Liberty-háskólanum í 64-liða úrslitin í fyrra. Greinin hefur verið uppfærð.
Körfubolti Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira