Ungt fólk kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar 16. mars 2026 11:31 Sífellt fleiri ungir Íslendingar sjá ekki fram á að geta eignast eigið húsnæði. Á höfuðborgarsvæðinu hefur húsnæðisverð farið langt fram úr raunkostnaði bygginga. Húsnæði er í auknum mæli orðið fjárfestingarkostur líkt og hlutabréf og fjársterkir aðilar eru í kjöraðstöðu til að halda eignum frá markaði til að hámarka verðmæti fasteigna sinna. Þetta er vandamál sem við sjáum einnig skýrt í Hafnarfirði þar sem ungt fólk á sífellt erfiðara með að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þessi staða er grafalvarleg og vekur upp spurningar um hvort kominn sé tími til að endurskoða aðkomu bankanna að húsnæðismarkaðnum og skoða aðrar leiðir til fjármögnunar húsnæðislána. Ljóst er að núverandi fyrirkomulag kallar á endurskoðun. Ungt fólk á nú litla sem enga möguleika á að komast í eigið húsnæði. Ef það kemst inn á markaðinn eru skuldbindingarnar oft svo miklar að lítið má út af bregða til að illa fari. Þegar fólk hefur ekki tryggt húsnæði frestar það gjarnan barneignum enda er erfitt að stofna fjölskyldu í ótryggu húsnæði. Sumir telja að aðild Íslands að ESB geti leyst þessi vandamál meðal annars vegna lægri vaxta og minni verðbólgu innan sambandsins. Raunin er þó sú að húsnæðisvandi er einnig víða innan ESB þar sem mikill skortur er á húsnæði í mörgum borgum. Í stefnu Miðflokksins kemur fram að húsnæði sé hluti af grunnþörfum hverrar fjölskyldu og að stjórnvöld þurfi að tryggja að þeim þörfum sé mætt. Sveitarfélögin gegna þar lykilhlutverki. Við í Miðflokknum í Hafnarfirði teljum að hætta verði að selja lóðir til hæstbjóðanda á uppsprengdu verði. Slíkt fyrirkomulag hefur ýtt undir hærra húsnæðisverð og aukið verðbólgu. Ísland er ríkt land og lífskjör hér á landi eru með þeim bestu í heimi. Við getum leyst þennan vanda ef viljinn er fyrir hendi. Höfundur er pípulagningameistari og skipar 3. sæti á lista Miðflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Sífellt fleiri ungir Íslendingar sjá ekki fram á að geta eignast eigið húsnæði. Á höfuðborgarsvæðinu hefur húsnæðisverð farið langt fram úr raunkostnaði bygginga. Húsnæði er í auknum mæli orðið fjárfestingarkostur líkt og hlutabréf og fjársterkir aðilar eru í kjöraðstöðu til að halda eignum frá markaði til að hámarka verðmæti fasteigna sinna. Þetta er vandamál sem við sjáum einnig skýrt í Hafnarfirði þar sem ungt fólk á sífellt erfiðara með að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þessi staða er grafalvarleg og vekur upp spurningar um hvort kominn sé tími til að endurskoða aðkomu bankanna að húsnæðismarkaðnum og skoða aðrar leiðir til fjármögnunar húsnæðislána. Ljóst er að núverandi fyrirkomulag kallar á endurskoðun. Ungt fólk á nú litla sem enga möguleika á að komast í eigið húsnæði. Ef það kemst inn á markaðinn eru skuldbindingarnar oft svo miklar að lítið má út af bregða til að illa fari. Þegar fólk hefur ekki tryggt húsnæði frestar það gjarnan barneignum enda er erfitt að stofna fjölskyldu í ótryggu húsnæði. Sumir telja að aðild Íslands að ESB geti leyst þessi vandamál meðal annars vegna lægri vaxta og minni verðbólgu innan sambandsins. Raunin er þó sú að húsnæðisvandi er einnig víða innan ESB þar sem mikill skortur er á húsnæði í mörgum borgum. Í stefnu Miðflokksins kemur fram að húsnæði sé hluti af grunnþörfum hverrar fjölskyldu og að stjórnvöld þurfi að tryggja að þeim þörfum sé mætt. Sveitarfélögin gegna þar lykilhlutverki. Við í Miðflokknum í Hafnarfirði teljum að hætta verði að selja lóðir til hæstbjóðanda á uppsprengdu verði. Slíkt fyrirkomulag hefur ýtt undir hærra húsnæðisverð og aukið verðbólgu. Ísland er ríkt land og lífskjör hér á landi eru með þeim bestu í heimi. Við getum leyst þennan vanda ef viljinn er fyrir hendi. Höfundur er pípulagningameistari og skipar 3. sæti á lista Miðflokksins í Hafnarfirði.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar