Kennsla í skugga skráninga Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar 13. mars 2026 10:46 Jaðaratriðin í forgrunni Í vetrarfríinu fylgdist ég grannt með umræðum á Alþingi um grunnskólann. Ég beið með ákveðinni eftirvæntingu, í von um að sjá raunverulegar áskoranir skólastarfs teknar til umræðu: álag, skort á svigrúmi, stuðningsþjónustu, faglegu baklandi og forsendur faglegs starfs. Í stað þess fór megnið af umræðunni í afmörkun símabanns. Hvort bannið ætti aðeins við um snjallsíma eða einnig hefðbundna farsíma. Hvort símaúr félli undir skilgreininguna. Hvernig ætti að framfylgja reglunum og hvaða tæki teldust til síma.Svo það sé sagt: símanotkun í skólum er raunverulegt viðfangsefni. En hún er ekki megintálminn í daglegu starfi kennara. Hún er ekki það sem ræður úrslitum um gæði undirbúnings, einstaklingsmiðaða kennslu eða faglegt svigrúm. Það voru vonbrigði að fylgjast með umræðu sem snerist um jaðaratriði þegar stærri og flóknari áskoranir bíða úrlausnar. Það var áþekkt því að ganga vonsvikinn frá samtali þar sem maður hafði vonast eftir dýpt, en fékk í staðinn yfirborð. Ef við ætlum að taka skólamál alvarlega verðum við að beina sjónum að rót vandans, ekki aðeins sýnilegum birtingarmyndum hans. Ein af þeim rótum sem sjaldan fær þá athygli sem hún á skilið er hvernig tíma kennara er ráðstafað. Tíminn sem hverfur Undirbúningur kennslu krefst tíma. Hann krefst ígrundunar, skipulagningar og faglegs svigrúms. Góð kennsla verður ekki til í flýti. Hún byggir á því að kennari hafi rými til að aðlaga nám að ólíkum þörfum nemenda, fylgja þeim eftir og bregðast við því sem upp kemur í hverri kennslustund. Á undanförnum árum hefur sífellt stærri hluti vinnulags kennara færst frá kennslunni sjálfri yfir í skráningar, umsýslu, fundarsetur og fjölbreytta eftirfylgni. Kröfur um skjalfestingu, áætlanir, matsramma og samráð við ólík kerfi hafa aukist jafnt og þétt. Mörg þessara verkefna eiga rétt á sér og eru sprottinn upp af góðum ásetningi. En samanlagt hafa þau leitt til þess að rýmið fyrir kjarnann, kennsluna, hefur þrengst.Þetta er ekki spurning um að hafna ábyrgð eða gagnsæi. Það er eðlilegt að skólastarf sé metið og skjalfest. En þegar stjórnsýsluleg verkefni fara að taka yfir vinnudaginn þarf að staldra við og spyrja: Hvað hefur bæst við? Hvað hefur vikið? Og hver ber ábyrgð á þeirri forgangsröðun? Þegar kjarninn víkur fyrir nýjum kröfum Á sama tíma og skráningar og umsýsla hafa aukist hefur hlutverk skólans víkkað. Skólinn á ekki aðeins að sinna námi og menntun, heldur gegna vaxandi félagslegu hlutverki, vera vettvangur snemmtækrar íhlutunar, samráðsvettvangur ólíkra kerfa og í sumum tilvikum fyrsta viðbragð við flóknum samfélagsvanda. Kennarar standa því í auknum mæli í þeirri stöðu að vera bæði kennarar, stuðningsaðilar og tengiliðir milli kerfa. Allt þetta er mikilvægt. En allt þetta tekur líka tíma. Þegar nýjar kröfur bætast við án þess að annað víki, þá víkur kjarninn. Og þegar kjarninn víkur, þá veikjast gæði kennslunnar, jafnvel þótt ásetningurinn sé góður. Við getum ekki krafist sífellt meiri árangurs á sama tíma og við skerðum forsendur hans. Við getum ekki aukið væntingar án þess að ræða getu kerfisins til að standa undir þeim. Forgangsröðun er ekki aukaatriði; hún er grundvallaratriði. Kennsla í forgang Ef markmiðið er betri árangur og sterkari skólar þá þarf að horfa á skipulagið sjálft. Í fyrsta lagi þarf að vernda tíma kennara til kennslu. Ný verkefni sem færast inn í skólann verða að vera metin út frá áhrifum þeirra á kjarnastarfsemi, og annað þarf að víkja þegar nýtt bætist við. Í öðru lagi þarf að einfalda skráningarálag og endurskoða kröfur um skjalfestingu þannig að þær styðji við faglegt starf í stað þess að skyggja á það. Í þriðja lagi þarf skýrari ábyrgðarskiptingu milli skóla og annarra kerfa. Þegar skólinn er látinn taka við verkefnum sem tilheyra fleiri stoðum samfélagsins veikist það sem hann á fyrst og fremst að sinna. Þegar kjarninn þynnist út og minnkar rýmið fyrir einbeitingu, djúpa vinnu og raunverulegt nám, þá skiptir litlu máli hvort síminn er í vasanum eða ekki. Ábyrgð krefst afmörkunar Skólamál snúast ekki aðeins um metnað, stefnumótun eða nýjar aðgerðir. Þau snúast um forsendur. Um raunhæfa skiptingu ábyrgðar. Um það hvort kerfið sé hannað til að styðja við kjarnastarfsemina eða hvort það sé smám saman farið að skyggja á hana. Kennarar eiga rétt á starfsskilyrðum sem gera þeim kleift að sinna faginu af heilindum og fagmennsku. Börn eiga rétt á kennslu sem nýtur verndar í skipulagi og ákvörðunum. Og samfélagið á rétt á skólakerfi sem byggir á skýrri forgangsröðun, ekki sívaxandi væntingum án afmörkunar. Þegar skólinn er látinn taka við verkefnum sem tilheyra fleiri stoðum samfélagsins veikist það sem hann á fyrst og fremst að sinna. Ábyrgð án marka leiðir óhjákvæmilega til útþynningar. Kerfi sem grefur undan eigin forsendum getur ekki vænst annars en meðalárangurs. Forgangsröðun skiptir máli Umræðan um skólamál þarf að snúast um meira en einstök úrræði eða táknræn mál. Hún þarf að snúast um hvernig við forgangsröðum, hvernig við afmörkum ábyrgð og hvernig við verndum kjarnahlutverk skólans. Ég gef kost á mér í borgarstjórn fyrir Miðflokkinn í Reykjavík vegna þess að ég tel að þessi umræða hafi of lengi verið færð fram án þess að grundvallarspurningar séu teknar alvarlega. Það þarf pólitískan vilja til að endurskoða forgangsröðun, einfalda kerfi og tryggja að kennslan sjálf njóti verndar í skipulagi og ákvörðunum. Skólakerfið verður ekki sterkara af fleiri slagorðum. Það verður sterkara af skýrari mörkum og raunhæfum forsendum. Höfundur er grunnskólakennari og frambjóðandi í 11.sæti á lista Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stóra sósíalíska skinkumálið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir skrifar Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar skrifar Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson skrifar Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Skoðun Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson,Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar Skoðun Fagmennska, forgangsröðun og framtíð þróunarsamvinnu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gagnast ekki atvinnulífinu Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Það sem enginn segir þér um að flytja til annars lands Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Hvers vegna og hvernig háskólanám? Hallur Þór Sigurðarson skrifar Skoðun Frá þekkingu til verðmæta – hvar slitna tengslin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ilmurinn er svo lokkandi Einar Helgason skrifar Skoðun Við ræktum arfa og vonumst eftir rósum Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Lækkum leikskólagjöld og tökum upp 100% syskinaafslátt Tinna Berg Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Í þágu heimilanna… utan ESB Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Chardonnay á Sólvallagötu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg en ómissandi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Áfram menning og listir, ekki bara á tyllidögum! María Pálsdóttir skrifar Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar Sjá meira
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar
Skoðun Símalaus heimili – skref í átt að auknum samskiptum og betri þjónustu Gunnur Helgadóttir,Jakobína Hólmfríður Árnadóttir skrifar
Skoðun Áframhaldandi og markviss vinna í þágu barna í Hveragerði Eva Harðardóttir,Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir skrifar
Skoðun Látum ekki tækifærin renna okkur úr greipum Hulda Hallgrímsdóttir,Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir Skoðun