Hvað með heilaheilsu? Kolfinna Þórisdóttir skrifar 17. mars 2026 07:01 Þegar rætt er um heilsu beinist athyglin oft að líkamanum, útliti og andlegri líðan. En heilsa snýst um meira en það, og í umræðunni gleymist oft þáttur sem er ekki síður mikilvægur: Heilaheilsa. Heilaheilsa vísar til þess hversu vel heilinn starfar og hvernig hann styður okkur í daglegu lífi. Hún hefur meðal annars áhrif á hugsun, minni, vellíðan, svefn, skynjun og samhæfingu. Með öðrum orðum: heilaheilsa mótar hvernig við upplifum lífið og hvernig við tökumst á við verkefni, áskoranir og breytingar. Góð heilaheilsa skiptir máli alla ævi. Hún styður ekki aðeins við andlega og líkamlega vellíðan, heldur getur hún einnig hjálpað til við að draga úr líkum á sjúkdómum og vitrænni hnignun með aldrinum. Lengi vel var talað um líkama og heila eins og þetta væru tveir aðskildir heimar. En sannleikurinn er sá að þetta tvennt er nátengt. Það sem er gott fyrir líkamann er líka gott fyrir heilann. Þar skipta meðal annars máli góður svefn, regluleg hreyfing, næringarríkt mataræði, andleg örvun, minni streita og góð félagsleg tengsl. Smá skref – stór áhrif Góðu fréttirnar eru þær að það þarf ekki alltaf stórar breytingar til að styrkja heilaheilsu. Litlar og reglulegar venjur í daglegu lífi geta haft mikil áhrif til lengri tíma. Fjórir hlutir sem styðja við heilaheilsu Regluleg hreyfing Hreyfing er ein besta fjárfesting sem þú getur gert fyrir heilann. Hún eykur blóðflæði, styður við starfsemi taugakerfisins og hjálpar heilanum að viðhalda góðri virkni. Regluleg hreyfing getur bætt einbeitingu, minni og andlega líðan, auk þess sem hún getur dregið úr líkum á vitrænni hnignun síðar á ævinni. Góður svefn Svefn er nauðsynlegur fyrir heilann. Á meðan við sofum vinnur heilinn úr upplýsingum dagsins, styrkir minni og sér um mikilvægt viðhald. Góður svefn styður því bæði við nám, einbeitingu og tilfinningalegt jafnvægi. Þegar svefninn er nægur og reglulegur fær heilinn betri tækifæri til að starfa vel. Hugræn örvun og nýjar áskoranir Heilinn hefur gott af því að vera notaður. Að læra eitthvað nýtt, lesa, spreyta sig á þrautum eða takast á við ný verkefni getur styrkt tengingar í heilanum og haldið honum virkum. Þetta þarf ekki að vera flókið, jafnvel litlar breytingar á daglegri rútínu eða ný viðfangsefni geta verið góð þjálfun fyrir heilann. Til dæmis getur þú prófað að standa á einum fæti næst þegar þú tannburstar þig eða ferð í sokkana. Félagsleg tengsl Samskipti við annað fólk skipta miklu máli fyrir heilaheilsu. Góð félagsleg tengsl geta dregið úr streitu, stutt við andlega líðan og örvað heilann á margvíslegan hátt. Samvera, spjall, hlátur og tengsl við aðra eru því ekki bara notaleg, heldur eru þau mikilvæg fyrir heilsuna. Heilaheilsa snýst ekki um fullkomnun heldur daglegar venjur sem stuðla að betri líðan og virkni. Með því að hreyfa okkur reglulega, sofa vel, halda heilanum virkum og rækta tengsl við aðra getum við stutt við heilsu heilans og fjölgað heilbrigðum æviárum. Pistillinn er skrifaður í tilefni af Alþjóðlegri heilaviku sem verður fagnað í Háskólanum í Reykjavík dagana 16.-22. mars. Dagskrá viðburða er að finna á vefsíðu Háskólans í Reykjavík, hr.is. Höfundur er doktorsnemi í sálfræði og stundakennari við Háskólann í Reykjavík og þjálfari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Háskólar Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar