Viðskipti innlent

Eiga í við­ræðum um sjón­varpsinn­viðafélag

Birgir Olgeirsson skrifar
Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar
Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar Vísir/Vilhelm

Forstjóri Sýnar vill skoða möguleika á að koma upp sjónvarpsinnviðafélagi sem yrði nokkurs konar samstarf á milli Sýnar, Símans og Ríkisútvarpsins þegar kemur að tæknilegum kostnaði sem fylgir sjónvarpsútsendingum

Tilkynnt var í morgun að Síminn hefði gert tilboð upp á 5,2 milljarða króna í vef- og útvarpsmiðla Sýnar. Tilboðið barst frá Símanum eftir að Sýn tilkynnti undir lok síðasta árs að fjölmiðlahluti félagsins væri í endurskoðun.

Herdís Dröfn Fjeldsted sér fram á að rekstrargrundvöllur Sýnar muni styrkjast til lengri tíma með kaupunum en sjónvarpshluti Sýnar fylgir ekki með í kaupunum. Hún segir að unnið hafi verið að mikilli hagræðingu innan sjónvarpsrekstursins en hægt væri að ná talsverðri hagræðingu sem myndi fylgja samstarfi fjölmiðla við tæknilega útfærslu sjónvarpsútsendinga.

„Við höfum verið í miklu samtali við stjórnvöld um fjölmiðlamarkaðinn heilt yfir og lagt áherslu á að þar séu tækifæri til að gera betur. Við höfum líka rætt um að það væri áhugavert að til væri sjónvarpsinnviðafélag þar sem tæknilegir innviðir eru sameiginlegir. Það er eitthvað sem yrði áhugavert og við höfum átt samtöl um það,“ segir Herdís.

Verði af kaupunum mun Síminn eignast Vísi, ja.is, Innherja og Bland.is ásamt útvarpsmiðlum Bylgjunnar, Léttbylgjunnar, Gullbylgjunnar, FM957, X977 og hlaðvarpsveituna Tal.

Félögin hafi komist að samkomulagi um helstu skilmála en búast megi við að ferlið sem sé fram undan muni taka upp undir tólf mánuði.

„Það sem við höfum verið að horfa til er að styrkja félagið til lengri tíma og styrkja reksturinn og þessi ákvörðun er mjög stefnumarkandi og með þessari ákvörðun náum við að styrkja rekstur félagsins til lengri tíma,“ segir Herdís.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×