Lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk – ábyrg uppbygging til framtíðar Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar 12. mars 2026 10:01 Uppbygging íbúða sem henta eldra fólki er eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélaga á næstu árum. Í Hafnarfirði liggur fyrir að eldri borgurum muni fjölga á komandi árum og því er mikilvægt að bregðast við með markvissum hætti. Markmiðið er skýrt: að skapa húsnæði sem gerir fólki kleift að búa lengur sjálfstætt, við góðar aðstæður og með aðgengi að þjónustu og samfélagi. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að greina hvernig best sé að standa að slíkri uppbyggingu í bænum. Starfshópur um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk skilaði skýrslu þar sem lagðar eru fram tillögur um svokallaðar lífsgæðaíbúðir. Hugmyndin byggir á því að hanna íbúðir og nærumhverfi þannig að öryggi, aðgengi og félagsleg þátttaka fari saman. Slíkar íbúðir eru því ekki aðeins húsnæði, heldur ákveðið búsetuform sem styður sjálfstæði og virkni fólks á efri árum. Lífsgæðaíbúðir eru meira en hefðbundnar íbúðir Í skýrslu starfshópsins er lögð áhersla á að lífsgæðaíbúðir séu sérstaklega hannaðar með þarfir eldri einstaklinga í huga. Þar skiptir máli aðgengi, öruggt umhverfi, sameiginleg rými til félagslegrar samveru og góð tenging við þjónustu í nærumhverfinu. Markmiðið er að skapa aðstæður sem styðja við sjálfstæði, vellíðan og virka þátttöku í samfélaginu. Þetta er því ekki aðeins spurning um að byggja íbúðir heldur að skapa búsetuform sem styður fólk til að lifa virku og sjálfstæðu lífi lengur. Til þess þarf að huga að fleiri þáttum en byggingunni sjálfri, þáttum eins og skipulagi, þjónustu, félagslegu umhverfi og framtíðarþörf. Í skýrslunni er því lagt til að unnin verði heildstæð uppbyggingaráætlun til næstu tíu ára sem byggir á greiningu á raunverulegri þörf, þróun íbúa og skipulagi bæjarins. Með slíkri nálgun er hægt að tryggja að uppbyggingin verði markviss og að framboð íbúða fyrir eldra fólk verði fjölbreytt og til staðar víðar í bænum. Ábyrg uppbygging krefst vandaðs undirbúnings Á fundi bæjarstjórnar þann 25.febrúar sl. var ákveðið að fela bæjarráði að vinna áfram með málið á grundvelli niðurstaðna starfshópsins. Þar verður unnið að mótun heildstæðrar uppbyggingaráætlunar fyrir lífsgæðaíbúðir fyrir eldra fólk í Hafnarfirði, þar sem horft er til raunverulegrar þarfar, skipulags og mögulegra byggingarreita. Þessi afgreiðsla tryggir að vinna við málið heldur áfram með ábyrgum og faglegum hætti. Því er miður að umræðan um þetta mikilvæga mál hafi á köflum verið sett fram með hætti sem byggir á rangfærslum og pólitískri einföldun. Slík framsetning kann að þjóna skammtímamarkmiðum í pólitík en hún gerir lítið til að stuðla að málefnalegri umræðu um hvernig best sé að byggja upp húsnæði fyrir eldri borgara. Uppbygging lífsgæðaíbúða fyrir eldra fólk er of mikilvægt verkefni til að verða að pólitísku slagorði. Eldri borgarar í Hafnarfirði eiga skilið heiðarlega umræðu og vandaðan undirbúning þannig að uppbyggingin verði raunveruleg og til framtíðar. Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður fjölskylduráðs í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar