„Þetta er ógeðslegt starf“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 10:01 Benedikt Guðmundsson á bekknum þegar hann var þjálfari Tindastóls. Vísir / Diego Benedikt Guðmundsson er einn reyndasti körfuboltaþjálfarinn í sögu íslenska körfuboltans en hvorki hann né Teitur Örlygsson mæta með því að fólk fari út í körfuboltaþjálfun í meistaraflokki.
Benedikt hélt eldræðu um þjálfarastarfið í síðasta þætti af Bónus Körfuboltakvöldi en umræðan skapaðist eftir að Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkinga, viðurkenndi hvað starfið hefði tekið mikið á hann og kostað hann margar svefnlausar nætur. Rúnar brosti út að eyrum og talaði um að þungu fargi væri af honum létt eftir sigur Njarðvíkinga á Ármanni en með því var sæti liðsins í Bónusdeildinni 2026-27 gulltryggt. Teitur Örlygsson var með Benedikt í þættinum. Búinn að fá þetta í fangið „Marga langar að rétta Rúnari bara autt spjald og leyfa honum einhvern tímann að búa til sitt lið. Hann er búinn að fá þetta dálítið mikið í fangið, langa samninga við leikmennina og ekki hægt að gera neinar breytingar. Forsendan númer eitt er náttúrulega að liðið haldi sig í deildinni,“ sagði Teitur. Klippa: Eldræða Benedikts um þjálfarastarfið Stefán Árni Pálsson gekk þá á Benedikt um hvort hann hefði ekki hitt Rúnar Inga á Nettómótinu fyrr um daginn. „Ég hitti hann í morgun og hann var enn þá í þessu hugarástandi sem hann var í í viðtalinu,“ sagði Benedikt. „Maður hefði haldið að hann myndi sofa út eftir að hafa sofið lítið nóttina á undan en hann var mættur þarna, og við vorum báðir mættir þarna, klukkan átta um morguninn í Ljónagryfjuna,“ sagði Benedikt. Ég elska þessa einlægni „Hann var að dæma og hann var að þjálfa dóttur sína þarna og var mjög léttur. Ég elska þessa einlægni,“ sagði Benedikt og vísaði í viðtalið. Hann segir að ekki bara Rúnari Inga hafi verið létt heldur allir Njarðvíkingarnir sem hann hitti á Nettómótinu. „Bara léttirinn fyrir alla, þegar fólk var drullustressað að vera að fara að falla,“ sagði Benedikt og ræddi síðan í framhaldinu starf þjálfarans. „Þetta gefur svona smá innsýn inn í líf þjálfara. Við Teitur erum báðir búnir að þjálfa og þetta er meira en að segja það. Þú mátt náttúrulega ekki vera heill á geði til þess að fara í þetta starf. Það er bara ekki fyrir alla,“ sagði Benedikt. Hvernig heldurðu að hún sé hjá öðrum félögum? „Þú sérð pressuna sem að Rúnar er að upplifa. Hvernig heldurðu að hún sé hjá öðrum félögum sem eru kannski að moka pening í þetta og ætla sér ekkert annað en toppinn? Og ef þú tapar bara einum leik, þá er bara eiginlega einhvern veginn allt á hliðinni,“ sagði Benedikt. „Það þyrfti að gera einhvern tímann svona heimildarmynd um líf þjálfara á Íslandi, hvað hver er að díla við alla daga. Þjálfun er mjög skemmtileg en bullshittið sem allir þjálfarar þurfa að díla við, sem er ekkert endilega í starfslýsingunni,“ sagði Benedikt. Í beinni útsendingu í vinnunni „Ég veit ekki hvort allar starfsstéttir væru til í það. Þú ert í beinni útsendingu í vinnunni og fólk er að fylgjast með þér sinna þínu starfi. Þú ert með hljóðnema á þér og svo koma einhverjir sérfræðingar að sunnan eins og við og meta frammistöðuna hérna strax eftir leik,“ sagði Benedikt. „Daginn eftir eru tíu hlaðvörp um hvað þú gerðir, sagðir og hvernig þú skiptir. Þú ferð út í búð og færð spurninguna: Af hverju settirðu ekki þennan inn á? Þú ert að fá skilaboð og það er verið að kalla þig á fund. Þetta er alls konar sem fólk hefur ekki hugmynd um,“ sagði Benedikt. Hafa farið í gegnum djúpa dali „Þetta er ógeðsleg vinna og það hafa margir þjálfarar og margir vinir mínir farið í gegnum djúpa dali í þessu starfi. Þetta er ógeðslegt starf. Þannig að ungir þjálfarar þarna úti, ekki fara út í þjálfun,“ sagði Teitur. „Ég er bara algjörlega sammála,“ sagði Benedikt hlæjandi en það má sjá þessa umræðu þeirra hér fyrir ofan. Tuttugasta umferð Bónusdeildar karla í körfubolta hefst með fjórum leikjum í kvöld en fylgst verður vel með gangi mála á Skiptiborðinu og hægt að sjá alla leikina í beinni á sportrásum Sýnar.
Bónus-deild karla Körfuboltakvöld Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi hafði betur gegn Rubio Fyrstur síðan David Robinson var og hét Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjá meira