Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Stefán Árni Pálsson skrifar 12. mars 2026 14:01 Ingibjörg á og rekur Pure Deli heilsustaðina. Athafnakonan Ingibjörg Þorvaldsdóttir hefur verið áberandi undanfarin ár og meðal annars rekið vinsælar fataverslanir og veitingahús og nú rekur hún einn vinsælasta heilsuveitingastað landsins, Pure Deli.
Hún hefur rekið sig harkalega á vegna gríðarlegs vinnuálags en hefur verið dugleg að finna leiðir til að slá á streitu og kvíða og svo drekkur hún sérstakt te á kvöldin sem hreinlega slær á sykurlöngunina. Ingibjörg borðar helst ekki seinna en sex á kvöldin og svo hefur hún fundið ýmsa heimsþekkta aðila sem hún fylgist með á netinu og sækir þangað leiðbeiningar og hugmyndir. Auk þess les hún einnig bækur sem hjálpa við að halda henni á heilsubrautinni bæði andlega og líkamlega. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og skoðaði hvaða leiðir Ingibjörg hefur fundið til að gera lífið auðveldara og betra. „Ég hugsa bara ofboðslega mikið um hvað ég set ofan í mig. Það er svona bara með hverju árinu sem líður þá verð ég næmari og hugsa enn meira um hvað ég borða. Uppistaðan er ferskir safar, salöt og svona svolítið prótein með. En ég er löngu hætt að borða kartöflur nema kannski smá sætar kartöflur. Ég nota rótargrænmeti í staðinn og svona stundum kjúkling með eða fisk. Það er svona partur af því að ná utan um að líða vel og sofa betur og hafa auðvitað betri orku,“ segir Ingibjörg sem hefur áður rekið sig á vegg og unnið yfir sig. „Oftar en einu sinni. Þar hefur hollur maturinn og hreyfing og jóga hjálpað. Ég lærði hjá jógakennaranum henni Auði í Jógasetrinu og ég mæli með því fyrir allar konur. Þetta bara gerði ég fyrir sjálfa mig. Vonandi fer ég nú kannski að kenna það einhvern tímann. En ég gerði þetta fyrir mig. Og upp úr stendur öndunin, alveg klárlega.“ Ingibjörg notar til að mynda jógaöndun við kvíða. Hægt að gera þetta um borð í flugvél „Ég fæ kannski kvíða og vakna á nóttunni eða yfir miðjan daginn og stundum kemur þetta svona aftan að manni. Þá gríp ég í öndun mína og þá bara tek ég þetta og þessi aðferð heitir fjórir, fjórir, sex. Þá anda ég bara rólega inn á við fjórum sinnum, held inni í loftinu og hleypi því hægt út. Þetta geri ég bara alveg nokkrum sinnum í röð og þá einhvern veginn nær maður sér bara alveg til baka. Það er alveg ótrúlegt að bara róa kerfið og þetta er smá svona fyrst að venja sig á þetta, mér fannst það ekki auðvelt. Ég var greinilega faststressuð. Svo getur maður gert þetta án þess að nokkur sjái. Þú getur setið í flugvél eða verið í miðju boði og finnur einhvern svona kvíða innra með þér og þá geturðu gert þetta bara í hljóði. Og svona náð þér til baka.“ Ingibjörg borðar oftast ekkert í morgunmat. „En ég tek alltaf einn ferskan safa sem er oftast detoxsafinn. Ég elska kaffi þannig að ég tek það nú sjaldan út. Ég fæ mér minn góða kaffibolla á morgnana. Stundum bara leyfi ég mér alveg að vera bara fastandi til hádegis. Svo alltaf salat í hádeginu og alltaf salat svona helst klukkan hálf sex. Svo er gott að eiga kannski harðfisk eða hnetur. Svona held ég bara orkunni minni og mér líður vel ef ég geri þetta. Þannig að ég vil ekki mat sem svona tekur mig niður og þyngir mig.“ En til að slá á sykurþörfina er Ingibjörg með te heima hjá sér sem nýtist vel á þeim stundum. „Ég er búin að drekka það í svo mörg ár. Á tímabili var ekki hægt að fá þetta og þá þurfti ég að leita að þessu á eBay og eitthvað sko. En einn svona bolli, þetta slær á sykurlöngun og hungur, allavega hjá mér og ég bara mæli með því að fólk prófi.“
Vala Matt Ísland í dag Heilsa Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira