Taka skemmtiferðaskip í Vör Samúel Karl Ólason skrifar 9. mars 2026 10:18 Til stendur að taka farþega miðstöðina Vör í notkun í vor. Faxaflóahafnir Ný fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna mun fá nafnið Vör. Það er niðurstaða nafnasamkeppni þar sem Íslandsmet var sett, bæði hvað varðar fjölda þáttakenda og fjölda tillagna.
Umrædd farþegamiðstöð er að rísa við Viðeyjarsund og stendur til að taka á móti fyrstu farþegum skemmtiferðarskipa þar í vor. Nafnasamkeppnin var sett af stað í upphafi árs og var skilafrestur til 1. febrúar. Eftir það tók dómsnefnd við tillögunum og valdi þá bestu. Nenfdin hafði meðal annars það að leiðarljósi við valið að það skyldi vera þjált, falla vel að íslenskri málhefð og væri ekki tungubrjótur fyrir þau sem tala önnur mál. Sjá einnig: Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Í heildina bárust 6.025 nafnatillögur frá 3.384 einstaklingum. Það ku vera Íslandsmet í nafnasamkeppni hér á landi, bæði varðandi fjölda tillagna og þátttakenda. Samkvæmt tilkynningu frá Faxaflóa sendu 1.200 einstaklingar inn 4.157 tillögur þegar nafn Hörpu ar valið árið 2009. Þegar nafn Smiðju var valið árið 2023 voru tillögurnar 826 frá 502 aðilum en það sama ár fékk Edda, hús íslenskunnar, nafn eftir samkeppni þar sem 1.580 einstaklingar sendu inn 3.400 tillögur. Vör fékk 115 tillögur og var hún þriðja algengasta tillagan. Samkvæmt reglum keppninnar, þar sem ferð til Bretlands var í verðlaun, var rökstuðningur látinn ráða ef bærist sama tillaga frá mörgum þátttakendum og þar sem dómefnd mat rökstuðning nokkurra innsendinga bera af, var hlutkesti látið ráða milli þeirra. Í þeim vendingum var Vala Steinsdóttir hlutskörpust. Í rökstuðningi hennar segir: „Vör er staður komu og samveru. Skjól við sjóinn þar sem ferðalangar, borgarbúar og hugmyndir mætast, allt árið um kring. Vör er rótgróið íslenskt orð sem vísar til lendingar, móttöku og skjóls við sjó. Nafnið á sér djúpar tengingar við siglingar og komu til landsins og endurspeglar þannig hlutverk farþegamiðstöðvarinnar á skýran og táknrænan hátt. Um leið er Vör stutt, hljómfagurt og auðvelt í framburði fyrir fólk af ólíkum tungumálabakgrunni. Nafnið fellur vel að íslenskri málhefð en er jafnframt alþjóðlega aðgengilegt. Vör nær utan um bæði virkni hússins yfir sumartímann og hlutverk þess sem samkomu- og menningarrými yfir vetrarmánuðina.“ Dómnefnd samkeppninnar skipuðu Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, Líf Magneudóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna og Vigdís Hafliðadóttir, listamaður, heimspekingur, sjónvarpskona og textahöfundur, sem jafnframt var formaður nefndarinnar. „Fyrir hönd Faxaflóahafna og allra sem koma að því að reisa þessa nýju fjölnota farþegamiðstöð í Reykjavík vil ég þakka fyrir þennan mikla áhuga og þátttöku í nafnasamkeppninni,“ er haft eftir Gunnari Tryggvasyni í áðurnefndri tilkynningu. „Dómnefndin hafði úr fjölda góðra tillaga að velja og ég er afskaplega sáttur við að húsinu hafi verið fundið þetta fallega og viðeigandi nafn. Vör ber með sér skýra tengingu við hafið og hlutverk hússins, sem lendingarstaður skipa og ferðalöngum skjól.” Vigdís Hafliðadóttir slær á svipaða strengi sem formaður dómnefndar. „Það var gaman að sjá hve margar frábærar og frumlegar tillögur bárust og dómnefndin ræddi þetta fram og til baka en við erum hæstánægð með niðurstöðuna. Vör er fallegt rótgróið orð úr íslenskri menningu, sem ný kynslóð fær nú að kynnast. Orðið þýðir lendingarstaður báta, Vör er líka gyðja visku og varkárni í Norrænni goðfræði (og gleymum því ekki að vits er þörf þeim er víða ratar) og svo býður orðið líka upp á skemmtilega orðaleiki og við vonum að fólk hlakki til að mæta í veislu í Vör með bros á vör.”
Hafnarmál Skemmtiferðaskip á Íslandi Reykjavík Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira