Blómin í haganum og börnin í boxinu Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 9. mars 2026 08:02 Reykjavíkurborg gaf nýverið út drög að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni. Þar er rætt um mikilvægi þess að vernda vistkerfi, fylgjast með þróun tegunda og tryggja að lífríki borgarinnar fái að dafna. Allt eru þetta góð og gild markmið. En á meðan borgin leggur mikla áherslu á að vernda fjölbreytileika plantna og dýra vaknar óhjákvæmilega spurning: Af hverju gildir þessi hugsun ekki þegar kemur að börnunum í skólum borgarinnar? Sannleikurinn er sá að á meðan Reykjavík talar hátt um líffræðilega fjölbreytni virðist hún eiga mun erfiðara með að takast á við mannlegan fjölbreytileika. Kerfi sem hentar bara sumum börnum Á síðustu árum hefur Reykjavíkurborg ýtt áfram hugmyndum um opnar kennslustofur, stór sameiginleg rými, mötuneyti og sveigjanlegt skólaumhverfi. Það kann að virka fyrir sum börn. En fyrir mörg önnur er þetta einfaldlega óstarfhæft umhverfi. Börn með einhverfu, ADHD eða skynjunarvanda þurfa oft ró, skýra ramma og afmörkuð rými til þess að geta lært og liðið vel. Í staðinn eru þau sett inn í hávaðasöm opin rými þar sem áreiti er stöðugt. Það þarf ekki sérfræðing til þess að sjá að slíkt hentar ekki öllum. Ef borgin hannaði náttúruverndarsvæði sem virka aðeins fyrir eina tegund fugla eða blóma en það myndi á sama tíma ýta öðrum út úr vistkerfinu væri það kallað misheppnuð náttúruvernd. Þegar þetta gerist í skólakerfinu virðist enginn bera ábyrgð. Skólaforðun, vandamál sem kerfið vill ekki sjá Á sama tíma eru sífellt fleiri foreldrar að glíma við skólaforðun barna sinna. Þrátt fyrir að umræðan hafi aukist hefur Reykjavíkurborg ekki lagt í markvissar rannsóknir á vandanum, hvað þá aðgerðir til að takast á við hann. Við vitum ekki hversu mörg börn eru í skólaforðun, hvaða hópar eru helst í þeim vanda og hvað þá hvaða aðstæður í skólanum sjálfum kunna að spila þar inn í. Þetta er merkilegt í ljósi þess að borgin leggur mikla áherslu á vöktun og rannsóknir þegar kemur að líffræðilegri fjölbreytni. Þar er allt mælt, skráð og kortlagt. En þegar kemur að börnum virðist áhuginn á gögnum vera mun minni. Skortur á úrræðum og langir biðlistar Á sama tíma hafa foreldrar ítrekað bent á skort á sértækum úrræðum í skólum borgarinnar. Pláss í einhverfudeildum eru allt of fá, sérskólar eru yfirfullir og þeim hefur ekkert fjölgað. Biðlistar eftir stuðningi, talþjálfun og annarri þjónustu eru langir. Innflytjendur fá ekki nógu góða móttöku né utanumhald og sérfræðingar í þessum málefnum sem starfa með börnunum eru sjaldséðir. Þetta er ekki bara vandamál fyrir þessi tilteknu börn heldur líka fyrir hin börnin í skólanum, fyrir kennarana og ekki síst fjölskyldurnar takast á við afleiðingarnar. Fjölbreytileiki sem slagorð Í stefnu borgarinnar er oft talað um fjölbreytileika. En fjölbreytileiki er ekki bara fallegt orð í stefnumótunarskjölum. Hann krefst þess að kerfið sé hannað fyrir ólík börn með ólíkar þarfir. Skólakerfi Reykjavíkur virðist byggt á þeirri forsendu að öll börn eigi að passa inn í sama mót. Og þau sem gera það ekki þurfa að aðlagast eða hreinlega falla út úr kerfinu. Hvað ef börnin væru vistkerfi? Myndi Reykjavíkurborg nálgast skólakerfið með sömu hugsun og er til grundvallar í áætlun hennar um líffræðilega fjölbreytni myndi hún byrja á einföldum spurningum: ·Hvaða börn eru að blómstra í skólunum? ·Hvaða börn eru að dragast aftur úr? ·Hvaða börn og hversu mörg eru í skólaforðun? Og síðan myndi hún safna gögnum, rannsaka vandann og grípa til markvissra aðgerða. Þess í stað virðist ríkja afneitun gagnvart vandanum. Ef við skoðum ekki vandann þá er hann ekki til staðar. Borg sem vill vera framsækin Reykjavíkurborg vill gjarnan líta á sig sem framsækna borg sem tekur umhverfismál alvarlega. Það er gott. En ef borg sem leggur svo ríka áherslu á fjölbreytileika í náttúrunni getur ekki tryggt að ólík börn fái raunverulegt rými til að læra og þroskast í skólanum sínum, þá er eitthvað farið úrskeiðis í forgangsröðuninni. Hættum að vera borg sem verndar fjölbreytileika náttúrunnar betur en fjölbreytileika barna í skólakerfinu. Höfundur er uppeldisfræðingur og frambjóðandi á lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarstjórn Skóla- og menntamál Réttindi barna Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar