Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Freyja Þórisdóttir skrifar 5. mars 2026 19:25 Fyrrverandi landgönguliðinn Brian McGinnis var fjarlægður úr yfirheyrslusal á Capitol-hæð í Washingon DC. Getty Heyra mátti framhandlegg fyrrverandi landgönguliðans Brian McGinnis brotna í átökum sem áttu sér stað í Washington í dag. Myndskeið af atvikinu hefur verið í mikilli dreifingu síðastliðnar klukkustundir.
Brian McGinnis á yfir höfði sér þrjár kærur eftir að hafa truflað yfirheyrslu í hermálanefnd öldungadeildarinnar á Capitol-hæð í Wasington DC og hrópað: „Ísrael er ástæðan fyrir þessu stríði, Bandaríkin vilja ekki berjast fyrir Ísrael.“ Þessu greinir breski fréttamiðillinn Reuters frá í umfjöllun sem var birt fyrr í dag. Þar kemur fram að átök hafi brotist út þegar þinglögreglumenn á staðnum reyndu að fjarlægja McGinnis úr salnum. Í myndskeiði sem hefur farið eins og eldur um sinu í dag má sjá lögreglumennina reyna að ýta McGinnis, sem var klæddur í hermannabúning, út um dyr salarins. Hann kallar áfram: „Enginn vill berjast fyrir Ísrael,“ en í leiðinni reynir hann að skorða sig af í dyragættinni með þeim afleiðingum að annar handleggur hans klemmist. Fólk í salnum virðist hafa tekið eftir því nánast um leið en í myndskeiðinu heyrist greinilega í mörgum reyna að vekja athygli á handleggnum. Örskammri stundu seinna má heyra brak og einnig er auðvelt að sjá hvernig framhandleggur McGinnis brotnar. Tim Sheehy, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, var í salnum þegar átökin áttu sér stað og það sem meira er, hann lagði sitt af mörkum við að ýta McGinnis fram á gang. „Lögreglan á þinghússvæðinu var að reyna að fjarlægja óstöðugan mótmælanda úr yfirheyrslu hermálanefndar. Hann veitti mótspyrnu. Ég ákvað að hjálpa til og draga úr spennunni. Þessi maður kom til þinghússins í leit að árekstrum og fékk þá. Ég vona að hann fái þá hjálp sem hann þarf án þess að valda frekara ofbeldi,“ skrifaði Sheehy í færslu á X. Öldungardeildarþingmaðurinn Tim Sheehy tók þátt í að koma McGinnis út úr salnum en hann hefur tjáði sig um málið í færslu á X.Getty Þinglögreglan á Capitol-hæð hefur einnig sent frá sér tilkynningu vegna málsins en þar kemur fram að bæði lögreglumennirnir og McGinnis hafi hlotið viðeigandi meðferð. „Þrír lögregluþjónar hlutu meðferð vegna áverka og hinn grunaði, sem festi handlegg sinn í hurð til að veita lögregluþjónum okkar mótspyrnu og þvinga sér leið aftur inn í yfirheyrsluherbergið, hlaut einnig meðferð,“ sagði þinglögreglan. Í lok myndskeiðsins má heyra McGinnis biðla til annarra landgönguliða um að neita þátttöku í stríðinu. „Stattu upp sem landgönguliði, stattu upp fyrir Bandaríkjunum, ég bið þig,“ segir McGinn hástöfum á meðan hann er dreginn út ganginn. „Frelsið Palestínu, allt frá sölum Montezuma til strandar Trípólí.“
Bandaríkin Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira